Fórnarlamb ‘hryðjuverkakvótans’

Talibanar: Skilið konunni sem þið rænduð, pynduðu og nauðguðu eða við tökum bandarískan stríðsfanga af lífi!

Hún var seld til CIA í gegn um “hryðuverkakvóta” Bush stjórnarinnar, nauðgað, pynduð, eitt barn hennar myrt og ákærð um glæp sem ómögulegt er að hún hafi framið.

Gordon Duff skrifar um mál konu sem rænt var í Pakistan og seld gegn verðlaunafé sem Bush stjórnin greiddi fyrir uppljóstranir.  Hún og þrjú börn hennar voru fangelsuð, pynduð og nauðgað í 5 ár áður en Bandaríkjastjórn gerði svo lítið sem að viðurkenna að hún væri fangi þeirra.  Eitt barna hennar dó í fangelsinu.  Hún var ekki ákærð um glæpi en haldið án sannana vegna orðróms (orða glæpamanna sem fengu verðlaunafé fyrir ‘hryðjuverkamenn’).

Í pyndingatörn, fimm árum eftir að vera tekin höndum á þessi kona sem vigtar milli 40 og 50 kíló, vannærð og illa haldin, að hafa ráðist með ‘leynilegum’ bardagaíþróttastælum á 100 kílóa sérsveitarmann, snúið tvo Blackwater málaliða niður og svo hálfkyrkt tvo FBI fulltrúa.  Orðrómur segir tvo flotaseli einnig hafa látið í minnipokan fyrir þessum mennska ‘villiketti’.  Með öðrum orðum… eins fáránlega upplognar sakir og nokkur Sovét dómstóll gæti nokkurntíma hafa kokkað upp.

En nú hafa Talibanar handtekið bandarískan hermann og hóta að taka hann af lífi samkvæmt Afgönskum ‘Jirga’ lögum, nokkurs konar fjölskylduréttur, til að reyna að knýja á lausn konunnar. 

Sennilega fær þessi sauklausi hermaður að láta lífið í viðbót við harmleik konunnar og barna hennar.

Stríð er helvíti, það vill gleymast.

Skrif Gordon Duff um málið.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments