
Mogunblaðið hefur breytt um ritstjórnarstefnu á síðustu 20 árum. Hægt og rólega aðlagað sig nýrri heimsmynd. Ekki vegna þess að markaðurinn krefjist breytinga eða blaðið sé betra í dag. Þvert á móti, blaðið er ófaglegra, óvandaðra og óvinsælla en nokkru sinni fyrr. En þetta eru örlög verkfæra mikilmennanna. Þeim er beitt fyrir vagninn, þó þau skemmist í leiðinni og verði að sorpi, markmiðið er mikilvægara en viðskiptahagsmunir og nú er allt lagt undir á síðustu metrunum.
Upplýstur lýður er ekki sérlega heppilegur þegar leiða á þjóðina í myrkur alræðis og lénsskipulags. Þá er betra að hafa heimskan lýð, fólk sem sér ekki heildarmyndir, heldur bara hvað er að gerast fyrir framan nefið á því. Fólk sem lætur þægilega að stjórn, er svolítið seint á sér, fólk sem hefur alist upp við foreldravald og í raun aldrei orðið fullorðið, bara skipt út blóðforeldrum fyrir foreldralíki í formi ríkisvalds og stofnana.
Nú eru aðrar áherslur á síðum Morgunblaðsins heldur en bara fyrir tuttugu árum. Ég greip blað frá því fyrir 20 árum (10.4.1990) og athugaði efni þess. Á forsíðu voru 5 fréttir, allar erlendar. Ekkert annað. Á síðun 2-5 voru svo 14 innlendar fréttir. Á baksíðu voru svo 6 innlendar fréttir til viðbótar. Ekkert kusk (rassar, geimverur, furðusögur og þess háttar), engar íþróttir. Slíku er vandlega haldið á íþróttasíðu og svo einni eða tveimur kusk-síðum aftast í kring um bíóauglýsingar.
Næst skoðaði ég blað frá því fyrir 10 árum (7.4.2000). Ári og hálfu áður en hinir nýju tímar voru hringdir inn með atburðunum 11. september. Þar hefur stefnunni verið hnikað. Á forsíðu eru 4 erlendar fréttir og ein innlend. Á síðum 2-5 eru níu innlendar fréttir og ein kusk frétt. Á baksíðunni eru svo þrjár innlendar og ein íþróttafrétt. Kuskstuðull erlendu fréttanna er nokkur, en þær verða þó að teljast fréttir. Ein stórfrétt er þarna á forsíðu, frétt sem Kryppa.com myndi birta og gera mikið úr. Það er fréttin “Atlaga að vísindaniðurstöðum?” þar sem sagt er frá því hvernig auðhringir (tóbaksframleiðendur) notuðu fé sitt og áhrif til að grafa undan rannsóknum sem hentuðu þeim ekki. Ég er svo sem ekki áskrifandi, en ég tel fullvíst að Morgunblaðið hafi hunsað eða allavega ekki sett svipaða frétt frá því fyrir nokkrum vikum á forsíðu: Játar fölsun á tugum lyfjarannsókna.
Svo er það blaðið frá því í gær. Hjálpi oss allar vættir. Heimskt er heimaalið barn. Það er ekki langt síðan við Íslendingar hlógum að Bandaríkjamönnum fyrir það að þeirra fréttamiðlar segja nánast bara fréttir af heimavettvangi. Að þeir viti varla hvað Evrópa sé. Við erum ekki fjarri þeim upplýsingarstaðli, ef við treystum Morgunblaðinu fyrir upplýsingu okkar. Forsíða: 5 innlendar fréttir, eitt risakusk sem tekur fjórðung forsíðu. Síður 2-5, 6 innlendar fréttir, 2 kusk. Baksíða: 4 innlendar fréttir, 2 kusk, 3 íþróttafréttir.
Hvar eru svo erlendu fréttirnar í Morgunblaði nútímans? Á laugardaginn voru þær á blaðsíðu 22. Þar var þó ein stórfrétt, sem hefði átt að prýða forsíðu blaðsins. Einum degi á eftir smámiðlinum Kryppu segir Morgunblaðið fréttir á blaðsíðu 22 af því að Búsh vissi að fangarnir voru saklausir. Í meðferð Morgunblaðsins er það samt allt réttlætt, ekkert að því að hundruðir sakleysingja væru sendar í pyndingarfangabúðir gegn 5.000 dollara verðlaunafé á haus og forseti og helstu mikilmenni í stjórn viti af óréttlætinu. “Ótti við neikvæð áhrif á stríðsreksturinn skýrði yfirhilminguna.” Það skýrir allt og réttlætir. Aðrar erlendar fréttir á síðunni eru ómerkilegri, þar á meðal tvö risakusk, stór mynd af villisvínum og frétt um flughrædda uglu!
Comments
Powered by Facebook Comments