Fór löggan yfir strikið?

Kona á sextugsaldri virðist hafa verið sein til að stöðva bifreið sína eftir að hafa fengið merki um það frá lögreglu.

Við það urðu lögregluþjónarnir óðir af hræðslu og þegar konan rúllaði niður rúðunni, þá lét lögregluforingi hnefana dynja ítrekað á höfði konunnar, “til að villa um fyrir henni og koma í veg fyrir að hún myndi aka á þá,” auk þess að þegar barsmíðunum var lokið, þá skaut félagi hnefaleikarans tesisernum sínum í kerlu og lét 50.000 volta gamminn geysa.

Í upphafi var kærum hrúgað á konuna, akstur undir áhrifum, flótti frá handtöku og “árás á lögreglu”, en “árás á lögreglu” er í miklu uppáhald hjá bandarískri lögreglu, sérstaklega gegn þeim sem þeir sjálfir ráðast á.  Þessar ákærur flögnuðu smám saman af, eftir að konan hóf málarekstur gegn lögreglunni, og fljótlega var hún aðeins ákærð fyrir að stöðva ekki bifreið sína (nógu fljótt).  Á endanum var þeirri einu ákæru einnig vísað frá.

Lögregluforinginn handlagni er í launuðu fríi meðan á rannsókn stendur.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments