Fljúgandi teiser-róbótar teknir í notkun

Nú styttist í að hægt sé að teisa og gasa anarkista og leiðindapésa með sjálfvirkum og fjarstýrðum hætti úr öryggri fjarlægð í brynvarinni stjórnstöð.
Öryggismiðstöð heimalandsins styrkti innkaup Montgomery sýslu í Texas á stríðsróbótum sem hingað til hafa aðallega verið notaðir í Afganistan, en nú fá borgarar í Bandaríkjunum einnig að njóta þess öryggis sem felst í fljúgandi ómönnuðum njósna og teiserróbótum. Róbótarnir kosta 500.000 dollara stykkið, en öryggismiðstöðin greiðir helming af þessum kostnaði, enda umhugað að auka öryggistilfinningu í heimalandinu.
Og hvað gefur meiri öryggistilfinningu en að vita af ómönnuðum teisiróbótum sveimandi fyrir ofan, og sjá anarkista og fólk með leiðinlegar stjórnmálaskoðanir í flogaköstum eftir að teiser pílum hefur verið skotið í þá af njósna og teisiróbóta úr 20 metra hæð?
http://www.prisonplanet.com/dhs-funded-taser-drone-launched-in-texas.html
Lyklar:dauðaþjarkar, taser








