
Varalið stjórnarskrársinna í Arizona hefur sent beiðni til annarra stjórnarskrársinnaðra varaliða um hjálp við að verja um 80 km landamærasvæði í að minnsta kosti þrjá daga.
Ein af þeim áróðurslummum sem notuð var til að sverta Afgani eftir atburðina 11. september 2001, var að fótboltavöllum sem vestræn ríki höfðu reist í landinu til að létta lund borgaranna og gefa þeim heilbrigð, vestræn áhugamál, hefði verið breytt í aftökuleikvanga, þar sem menn voru teknir af lífi fyrir ýmis brot á lögum sem við skiljum ekki og viljum ekki. Þessi lumma virkaði vel á mig og suma aðra Íslendinga, sem hópuðust í “lið” og pöntuðu CNN áskrift, til að fylgjast með hefnd gegn múslímskum illmennum í beinni útsendingu.
Sem betur fer skilst mér að ég hafi verið í minnihluta vitlausra íslendinga. En ég lærði þó af mistökunum og lærði þá lexíu að stjórnvöld eru ekki fólkið í löndunum. Stjórnvöld eru andstæðingar fólksins í löndunum og ef þeim eru gefin of mikil völd, þá myndast alræðisríki, það er bara í eðli málsins.
En hér er skrítinn moli:
“Það eru fleiri afhöfðanir á landamærasvæði Bandaríkjanna og Mexíkó heldur en í Írak, Afganistan og öllum Arabalöndunum til samans, en fjölmiðlarnir segja ekki frá því,” segir útvarpsmaðurinn Dutch Joens, sem hefur frumkvæðið að þessari aðgerð varaliðanna til að stemma stigu við óöld á landamærasvæðum Bandaríkjanna. Ættingjum fólks er rænt og það krafið lausnargjalds. Þeir greiða lausnargjaldið og fá ættingjana senda í pörtum í 50 lítra tunnu. Við erum á landamærum þriðja heims ríkis sem er að flytja út ofbeldi og óöld til okkar og við verðum að gera eitthvað til að stöðva það.
Tilgangur aðgerðarinnar er að koma á lögum á svæðinu í þrjá daga og þar með sýna fram á að alríkisstjórnin eigi að geta gert slíkt hið sama.
America’s Militias Respond to 3-Day Muster Along Deteriorating Arizona Border
Mynd CC Olivier Brisson

Comments
Powered by Facebook Comments