Eitt heitasta Youtube myndbandið í dag sýnir þingmanninn, Bob Etheridge, taka í hálsmálið á óþekktum krakka með myndavél. Eitthvað fór það fyrir brjóstin á þingmanninum að vera spurður út í stuðning sinn við Obama. Eftir að myndbandið fór beint á Youtube vinsældarlistann birti þingmaðurinn auðmjúka afsökun á látunum í sér. Sagði að þetta væri óafsakanlegt og eitthvað fleira til að friða kjósendur.
En þó þingmaðurinn reyni ekki að ljúga sig út úr veseninu þá hefur spunadeild fjölmiðla farið í yfirgírinn. MSNBC reynir t.d. að klína framkomu þingmannsins á fyrirsát og árás óvandaðra aðila. Aðrir segja að þetta sé skipulögð herferð pólitískra andstæðinga þingmansins. En hvort “árásin” var skipulögð af andstæðingum eða um venjulega skólakrakka að ræða þá bætir það ekkert þessa framkomu.
“Ótrúlegt” en satt, fjölmiðlar eru notaðir í pólitískum tilgangi en ekki til að skýra satt og rétt frá staðreyndum. Ráðast á smiðinn í staðinn fyrir hengja bakarann sem bakar óæt brauð.
Hér er síðan viðtal við gaurinn sem birti myndbandið fyrst.

Comments
Powered by Facebook Comments