Finnar hætta svínabólusetningum

Heilbrigðis og velferðarstofnun Finnlands hefur stöðvað notkun H1N1 bóluefnisins vegna grunsemda um að það tengist 300 prósenta aukningu á tilfellum drómasýki meðal barna og ungs fólks á síðustu sex mánuðum.

Ekki er langt síðan svipaðar fréttir bárust frá Svíþjóð.

Þessar fréttir ættu að fæla foreldra frá því að láta bólusetja börn sín fyrir flensunni í ár, því svínabólan hefur verið sameinuð venjulegu flensusprautunni.

Drómasýki er taugasjúkdómur sem vírusar geta valdið.  Sjúklingur sem þjáist af veikinni getur sofnað án nokkurs fyrirvara, til dæmis meðan hann er að tala eða borða.  Vöðvar sjúklinga geta einnig skyndilega misst afl þannig að sjúklingurinn hrynur niður.  Lækning er ekki þekkt við veikinni.

Drómasýki er afar sjaldgæf röskun, en 15 ný tilfelli hafa komið fram í ungu fólki og börnum síðan í dessember í Finnlandi.  Það er greinileg tímasamsvörun milli þessara tilfella og bólusetninga við svínaflensunni, segir dagblaðið Helsingin Sanomat.

Að sögn Kari Lankinen, yfirlækni á Finnish Medicines Agency, þá eru læknar samsekir í yfirhylmingu vegna tengsla svínaflensubóluefnisins og drómasýki og þeir gerðu það svo starfsframi þeirra hlyti ekki skaða af.  Enn eitt dæmið um hversu skaðlegir “meðspilararnir” eru í raun.

http://www.infowars.com/finland-suspends-swine-flu-shots-after-vaccine-linked-with-neurological-disorder/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments