Fersk heimavara: Ostur úr brjóstamjólk

8 MarchGúrmeikokkurinn Daníel Ögrari (Daniel Angerer) er vanur að gramsa í bændamörkuðum, kolaportum, bryggjusporðum og öðrum stöðum þar sem hægt er að skora ferskt og spennandi hráefni fyrir veitingahús sitt.  Það þarf því ekki að koma á óvart að þegar kona hans framleiddi mun meiri mjólk en dóttir þeirra Arabella gat torgað, þá fóru hugmyndir að kvikna í kolli kokksins.  Hann hóf tilraunir með að nota hráefnið í ostagerð.  Eftir 14 daga úrvinnslu prófaði  hann afurðina og sætur keimur hennar kom honum þægilega á óvart.

Nú geta gestir kokksins á Klee Brasserie, New York, fundið ýmsa rándýra rétti sem skarta brjóstaostinum á matseðli kappans.  Þeir verða í boði meðan mamma mjólkar og birgðir endast.  Þar má nefna karamellukremaður graskersbrjóstostbiti með vínberjum og brjóstostur rúllaður í þurrkuðu porcini sveppadufti með brenndu laukmauki.

New York chef makes cheese out of wife’s breast milk

Creative Commons License mynd: Alessandro ;-)

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments