Ferðafrelsi að hætti ESB

Ef við getum lært eitthvað af tuttugustu öldinni, þá er það að helsta ógn við líf manna eru valdstjórnarfantar miðstýrðra ríkja, sem blésu á lífsloga meira en 170 milljóna manna í blóðugustu hamförum sem skráðar eru í sögunni.

Samkvæmt öllum rökréttum athugunum, þá eru nútímaríki stærstu og mestu rándýr sem eftir eru á jörðinni.  Sú hætta sem af þeim stafar hefur ekki dvínað með falli fasismans og kommúnismans.  Öll vestræn ríki þróast nú í átt að hraðvaxandi valdi ríkisins og miðlægu valdi yfir efnahagslegu og borgaralegu lífi fólksins. 

Stefan Molyneux, Freedomain Radio, fyrsti þáttur.

Stefán vill leggja ríkin niður og koma á samfélagi þar sem völdum er dreift og markaðurinn látinn ráða.  Ég er ekki viss um að allt virki eins og hann lætur sig dreyma um, sérstaklega fannst mér hugmyndir hans um lánshæfismatsfyrirtæki, sem héldu skrá um einstaklinga og fyrirtæki og gæfu þeim einkunnir, draumórakenndar í ljósi hrunsins og þeirrar staðreyndar að þrátt fyrir þær hamfarir, þá eru Moodys og Fitch enn í fullu fjöri og í bullandi bissness.  Stafán eyddi miklu púðri í fyrsta þætti Freedomain útvarpsins í að útskýra hvernig þessi fyrirtæki gætu ekki starfað nema með góðu orðspori, og hvernig þau myndu verða undir í samkeppni við önnur, siðprúðari fyrirtæki í sama geira, ef þau yrðu uppvís að spillingu.

En ég er alveg sammála honum um vandamálið, að ríki eru rándýr, þau eru andstæðingar borgaranna og að þau leysa verkefni sín ekki með hagkvæmum eða viðunandi hætti.

Þau eru andstæðan við frelsi, þau vilja blása sig sjálf út og breyta sér í yfirvöld í stað þjónustu.

Þess vegna er ekkert sameiginlegt með ESB og ferðafrelsi, eða frelsi yfirleitt.  Ekki í þeim skilningi sem almenningur leggur í orðin.  ESB er að verða að nýju Sovéti, risastóru regluverki skriffinna, sem hamlar öllu frelsi og gerir allt leyfisskylt og þar með óleyfilegt nema með undanþágum.  Þar á meðal ferðalög. 

Það er eitthvað óhugnarlegt við þetta myndskeið, sem framleitt er af andlegum afkvæmum Gestapó gamla, nú í vinnu hjá ESB.  Tónlistin er dramatísk og hefur yfir sér áru valds.  Myndefnið sýnir hvernig fulltrúar eru á hverju strái fyrir náð ESB að ýta fötluðum um í hjólastólum, eða kenna þeim á neyðarhnappa.  Ekki get ég ímyndað mér að blindir fái að hafa hunda í farþegarými flugvéla, en þannig er það í áróðursmyndböndum ESB.

Svo endar myndbandið á hljómstefi sem myndi hljóma vel í gjallhornum hvort sem er á samgöngumiðstöðvum í  Auswitch eða Síberíu og mynd sem sýnir fólk í bláum risalófa valdsboðssinna… þar sem þeir fá aðeins frið svo lengi sem hnefinn er ekki krepptur.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments