Í opnu bréfi til írösku þjóðarinnar biðja þeir Ethan McCords og Josh Stiebers afsökunar alla þá sem eiga um sárt að binda vegna framgöngu þeirra í Írak.
“Við erum báðir hermenn sem tókum þátt í 14 mánaða hernámi borgarhluta ykkar. Ethan McCord dró dóttur ykkar og son út úr sendibílnum og sá um leið svipmynd af andlitum sinna eigin barna. Josh Stieber var í sömu herdeild en var ekki viðstaddur þennan örlagaríka dag. Hann hefur þó oft valdið ykkur og samborgurum ykkar ómældum sárskauka.”
“Við höfum talað við hvern þann sem vill hlusta, sagt þeim að atburðurinn í Wikileaks myndbandinu sé aðeins toppurinn á ísjakanum. Samkvæmt okkar reynslu og annarra fyrrverandi hermanna sem við höfum rætt við. Þá eru þetta fastir leiðir eins og venjulega í stríðinu. Í myndbandinu kristallast eðli þeirra stríða sem Bandaríkin heyja í þessum heimshluta.”
“Stjórnvöld okkar hunsa ykkur kannski, spá frekar í ímynd sína. Þau hafa nú þegar hunsað marga fyrrverandi hermenn sem hafa snúið heim með ör á sál og líkama eftir ódæði í ykkar landi. Það er því löngu kominn tími á að við segjum að gildi þeirra sem stjórna landinu eru ekki okkar gildi.”
“Vinsamlegast takið við afsökunarbeiðni okkar, sorgum, umhyggju og viljanum til að breyta kerfinu innan frá. Við gerum okkar besta í að tala gegn því stríði og stefnu sem bera ábyrgð á því sem kom fyrir ykkur og fjölskyldu. “

Comments
Powered by Facebook Comments