FCC stofa með internet ádrepara

Alríkisstjórnin í Bandaríkjunum myndi hafa “alræðisvald” yfir umferð á internetinu samkvæmt nýju öldungardeildarfrumvarpi sem Joe Lieberman berst fyrir.

Þessi lagabálkur myndi gefa Óbama forseta táknrænan “ádrepara” sem færir veraldarvefinn undir stjórn með tilskipunum frá Öryggisráðuneyti Heimalandsins ef forsetinn telur um “neyðarástand” sé að ræða.

Frumvarpið nýtur hjartanlegs stuðnings öldungardeildarþingmannsins Joe Rockefeller, sem spurði á síðasta ári við opinbera vinnu í þingrannsókn: “Hefði það ekki verið betra ef við hefðum bara aldrei fundið Internetið upp?” um leið og hann mangaði með hræðsluáróður um internet hryðjuverkamenn.

Lieberman hefur verið iðinn við að ýta á að frelsi á internetinu sé hindrað með  regluverki stjórnvalda, undir yfirskini netöryggis, en þetta nýja frumvarp gengur mun lengra með því að gefa alríkisstjórninni neyðarvald sem nota má til að þagga málfrelsi undir yfirskini þjóðaröryggis.

http://www.prisonplanet.com/new-bill-gives-obama-kill-switch-to-shut-down-the-internet.html

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments