
Tölvuflögur í heila gætu hjálpað mænusködduðum að ganga, gert limalausum kleyft að stjórna vélútlimum og pólitískt ranghugsandi að elska ríkisstjórnina.
Það er lítill vafi um að þetta mun ganga eftir hjá þeim. Flagan mun vera tilbúin. Skil (interface) milli manna og tölva. Það er bara þröskuldur almenningsálitsins semþarf að yfirstíga. En við munum fljótt læra um gagnlegu hliðar flögunnar, en minna um þær slæmu. Fatlaðir ganga, fólk verður beintengt internetinu og getur ‘googlað’ andlit manna sem nálgast með útrétta hendi, en sá flegni man ekki hver er, þú veist alltaf hvar þú ert, því gps er innbyggður, sími – innbyggður, lyklaborð óþarft, þú bara talar, eða jafnvel hugsar og orðin streyma á skjáinn (og afrit sent stóra bróður).
Eiturlyf verða úrelt, ótrúlegir tölvuleikir þar sem þú ert mitt í atburðarásinni verða mun brjálæðri en nokkur lyfjavíma. Auk þess er bara hægt að örva sælustöðvarnar með flögunni. Klám fer í algerlega nýjar víddir. Fólk stekkur inn í dagdrauma, blauta eða þurra, og þekkir varla muninn á raunveruleika og draumi.
Brátt mun fólk ekki vilja koma til baka í ömurlegan hversdagsleikann, þar sem skattar, kolefnisgjöld og aðhaldsaðgerðir í boði heimsríkisstjórnarinnar gera hversdagsleikann líkastan tilveru þræla í fornöld. Fyrir utan það að jafnvel góður heimur á erfitt með að keppa við draumaheim flögunnar.
Líkamar fólksins ramba þá um og vinna dagleg þrælastörf og borða stöppuð skordýr og loðnumjöl undir stjórn svæðistölvanna, meðan hugar fólksins stunda villt stóðlíf og upplifa ferðalög um alheiminn, þar til einn daginn að líkaminn labbar á næstu bálstofu, undir sjálfvirkri stjórn flögunnar, til að láta eyða sér og kolefnisfótspori sínu.
http://www.telegraph.co.uk/health/healthnews/7870899/Brain-chips-could-help-paralysed-patients.html
CC mynd eliazar
OK ef áhyggjurnar eru þær að það verði sett í okkur tölvuflaga þannig það verði hægt að stýra okkur þá vakna hjá mér vangaveltur.
Ef við samþykkjum flöguna til dæmis vegna þess að við erum með mænuskaða og okkur er sagt að þá getum við gengið. OK hvernig getum við treyst því: Dæmi: ég er með mænuskaða og langar til að geta gengið. En ég treysti ekki flögunni eða mönnunum sem búa hana til. Ég get lært tölvufræði og tauglífeðlisfræði og skilið hvernig svona flaga virkar og búið hana til sjálf. Hvernig hljómar það?
Svá góðr
1
Ignorance is Bliss.
Svá góðr
1
Arna : Cypher var jú nokkuð sáttur
Svá góðr
0
Láttu mig hafa allar eignir þínar, ég læt þig fá gimp-grímu og einstaka hasspípu, milli þess sem ég sparka í þig. Eru þá ekki allir sáttir?
Svá góðr
0
Er þá flagan ekki bara skárri kostur en vera með fullifemm og upplifa heiminn eins og hann verður. Étandi skordýr en halda að maður sé á Holtinu.
Svá góðr
1