![]()
Webb hjónin
Félagsskapurinn Fabian Society var stofnaður seint á 19. öldinni. Helstu stofnendur voru Sydney Webb, sem starfaði sem skriffinnur fyrir bresku stjórnina allt sitt líf og reyndi sitt besta til að kyssa fætur þeirra sem ofar voru í þeirri von að hann yrði einn daginn aðlaður. Kona hans, Beatrice Webb kom úr hinni tignu Potters fjölskyldu, en sú fjölskylda var nokkurs konar Haliburton þeirra tíma vegna samninga sinna við breska herinn og krúnuna.
Auk þessara sómahjóna má nefna George Bernard Shaw, leikskáld sem líkt og popkúltúrinn í dag, fékk góða styrki frá iðnjöfrum, mannúðar og góðgerðastofnunum eins og þær kalla sig. Þessir aðilar lögðu línuna um hvaða efni skuli fjallað og með því höfðu þeir áhrif á umræðuna og stýrðu almenningsálitinu. Það hefur lítið breyst.
Þriðji aðilinn var H.G. Wells, sem var af lágum stéttum. Hann fæddist í fjölskyldu sem hafði misst eignir sínar. Móðir hans varð vinnukona hjá aðalsfjölskyldu og H.G. ólst upp í þessu húsi þar sem móðir hans var þjónn. Á þessum tíma iðnbyltingarinnar horfðu þau á bláfátækt verkafólk úr verksmiðjunum ganga framhjá gluggum hússins og lifðu í skelfingu um að þau þyrftu sjálf að bætast í þeirra raðir. Af þessum ástæðum urðu þau jafnvel enn snobbaðri en fólkið sem réði þau, hinir raunverulegu eigendur hússins.
Af þessum akri er auðvelt að plokka menn eins og H.G. Wells, sem þorsti eftir skárri stöðu knýr til að segja skilið við allt samviskubit og gera það sem þarf til að komast áfram. Hann fékk það hlutverk að skrifa skáldsögur sem breyttu hugsun fólks, kom inn hugmyndum, í raun, innrætti og heilaþvoði lesendur. Útópísk samfélög undir alræðisstjórn voru rauði þráðurinn í skáldverkum hans, svo sem “The Shape of Things to Come”.
Þessir þrír aðilar voru fronturinn á Fabian samfélaginu. Raunverulegir stofnendur var breska aðalsveldið, ekki breskur almenningur. Bresku verkamannastéttinni var kennt að þetta samfélag hefði verið stofnað fyrir hana og út úr því kom svo breski verkamannaflokkurinn. Yfirstjórn þess flokks er enn þann dag mönnuð af Fabian samfélaginu. Á heimili frú Webb í London má finna steindan glugga með mynd af stofnendum Fabian samfélagsins. Tveir of þeim, Webb og Shaw, eru með heiminn á steðja og eru að hamra hann í sína mynd.

Þessi mynd táknar það hvernig elítan er að hamra veröldina í almennilegt form, það form sem hún ætti að vera í. Ummyndun samfélagsins táknuð með jarðkúlunni. Milli Webbs og Shaw, fyrir ofan jarðkúluna á steðjanum, má sjá skjaldmerki Fabian samfélagsins, en það er úlfur í sauðagæru. Neðst á myndinni tilbiður fávís almenningur bókastafla sem kennir sósíalískar hugmyndir.
Efst á steinda glugganum er srkáð síðasta línan úr vinjettu Omars Khayyam:
Dear love, couldst thou and I with fate conspire
To grasp this sorry scheme of things entire,
Would we not shatter it to bits, and then
Remould it nearer to the heart’s desire!
Bertrand Russel (f 1872, d 1970) var enn einn félagi í Fabian samfélaginu. Bertrand Russel var hreinræktaður aðalsmaður. Faðir hans var Amberley lávarður sem var virkur í stjórnmálum. Hann sat í bresku lávarðadeildinni, ókjörinn, enda ganga sætin þar í erfðir.
Þessi sami maður er fremstur í friðarhreyfingunni kringum 1960. Enn fremstur í flokki í kring um níræðisaldurinn þá stjórnar hann “100 manna nefndinni” sem var róttæk hreyfing mótmælenda gegn stríðsrekstri. Þessi hópur ruddist inn á herstöðvar, klippti girðingar, stormaði inn á flugbrautir og olli skemmdum.
Þarna má enn og aftur sjá aðalsmann, fjármagnaðan af Fabian samfélaginu, sem þykist vera leiðtogi verkafólks, leiðandi fylkingar af fólki sem hefur fallið fyrir leiksýningu hans, en þessi aðalsborni maður, þessi lávarður, hafði ekkert sameiginlegt með þessu fólki. Ekki nokkurn hlut. Enda hafði hann ekkert samfélag við þetta fólk, nema sem ræðumaður, talandi til þeirra sem einhvers konar frelsari. Hann hafði ekkert samneyti við þetta fólk, því hann hafði ekkert sameiginlegt með þeim.
Hann var mannræktarsinni - eugenist. Hann trúði á mannbætur með því að rækta þær inn og takmarka ræktun hinna óæskilegu, lögboðnar fóstureyðingar fyrir fólk með lægri greindarvísitölu eða hver þau ræktunarmarkmið sem sett eru. Lávarðurinn Bertrand Russel var stórtækur leikari á sviðinu, hann skrifaði margar bækur sem innihéldu hluta sannleikans og ákveðnar staðreyndir, raðað upp til þess að lesandinn kæmist að fyrirfram gefinni niðurstöðu. Þú kemst að þessum niðurstöðum af því að aðrar staðreyndir eru ekki settar fram, þú sérð því bara hluta af myndinni og út frá þeim hluta kemstu að “réttum” niðurstöðum.
Heimildir:
Þessi pistill er lausleg þýðing á fyrirlestri Alan Watt frá því 25. febrúar, 2006. Eftirrit á ensku er hér en ég mæli með því að hlusta á þáttinn hér.
Aðrar heimildir:
http://www.freedom-force.org/freedomcontent.cfm?fuseaction=fabianwindow
http://news.bbc.co.uk/2/hi/uk_news/magazine/4944100.stm
Webb hjónin
Comments
Powered by Facebook Comments