Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir heitir einn heitasti Eyjupenninn í dag. Þessi jólasveinn er þó frábrugðin hinum sem skrifa á Eyjuna því hann borgar með sér. Sæunn er nefnilega jólasveinn í boði Íslandsbanka. Við hliðina á dálknum “vinsælast” koma greinar eftir hana og fleiri Íslandsvini. Ein greinin heitir “Að borga eða fá borgað – það er stóra spurningin” og fer Sæunn yfir hvenær fólk á að borga niður lán og hvenær ekki.
Sæunn segir að í einföldum heimi væri valið einfalt. Fólk ætti að borga niður allar skuldir sem fyrst. En sem betur fer sé heimurinn ekki einfaldur. Því þurfi að skoða hvað borgi sig. Síðan listar hún ýmsar sparnarleiðir fyrir fólk en ráðleggur þó eingöngu að leggja auðævin inn á venjulega bankabók. Það sé sko öruggast en gefi ógeðslega lélaga ávöxtun. Spennufíklarnir geti þó lagt inn á verðtryggðar bækur sem gefi mun betur af sér eins og sakir standa. Eina vandamálið sé að bankinn verði kannski ekki til eftir þrjú ár en bækurnar eru bundnar á meðan.
Við skuldatossana segir Sæunn að þeir eigi bara að halda áfram að skulda. Það sé gott og heilbrigt að skulda pínu pons. Eiginlega bara merki um að viðkomandi sé komin af barnsaldri og orðin virkur þátttakandi í íslensku samfélagi. Þó skuldirnar beri ævintýralega háa raunvexti þá hafi nú laun alltaf fylgt með. En orðrétt segir þessi Íslandsvinur:
“… sumar skuldir eru svo hagstæðar að þær eru hreinlega ágætis lífsförunautar.”
“Skuldir eru eðlilegur hluti vestræns heimilislífs á 21. öldinni. Marga dreymir um algert skuldleysi og setja sér háleit markmið um fullkomið frelsi innan ákveðins árafjölda. Það er gott og vel en hófleg greiðslubyrði er ekkert til að örvænta yfir.”
Í lokin hvetur Sæunn skuldara til að lifa lífinu og eyða peningum í sjálfa sig frekar en að borga niður skuldir.
Gleðileg jól.
(Ef myndin passar ekki, notaðu bara svart túss og skrifaðu Íslands fyrir framan banki.)

mikid rosalega er hun klar =) thessi jolasveinn er algjor bullukollur…..ekkert meikar sence hvad hun segir.
Svá góðr
2