
Erik Meijer er þingmaður eins af þessum ruglingslegu sam-evrópsku framboðum sem heitir… ja, GUE/NGL og virðist einhvers konar vinstri grænn kommúnistaflokkur með norrænu ívafi.
Það er sama hvaðan gott kemur, eða hvað? Erik spyr nú “nefndina” erfiðra spurninga:
Gufuslóðir flugvéla eru ekki lengur aðeins gerðar úr vatni, heldur valda þrálátum, mjólkurhvítum slæðum, hugsanlega vegna nýrra innihaldsefna, þar á meðal er baríum, ál og járn.
1) Er nefndinni kunnugt um að síðan 1999 hefur almenningur í Bandaríkjunum og Kanada kvartað vegna aukningar á þessari nýju tegund flugslóða, sem stundum haldast á lofti klukkustundum saman og dreifa mun meira úr sér en áður þekktist með þeim afleiðingum að mjólkurhvít slæða, sem kölluð er “loftkend myrkvun” myndast, og hefur vakið sérstaka athygli fólks vegna þess hve ólík hún er þunnum og fljótuppleystum þotuslóðum sem fólk kannast við frá upphafi þotualdar og aldrei geta endst lengur en 20 mínútur og myndast aðeins þegar gufa þéttist um rykagnir vegna lágs hitastigs og hás loftraka?
2) Er nefndininni kunnugt um að rannsóknir á þessum kvörtunum, athuganir flugmanna og opinberar yfirlýsingar benda í vaxandi mæli til þess að flugvélar séu að blása út í þurrt loft örsmáum ögnum sem samanstanda af baríum, áli og járni, fyrirbæri sem almenningur í Bandaríkjunum er farinn að kalla “efnaslóðir”?
3) Ólíkt þotuslóðum, þá eru efnaslóðir ekki nauðsynleg hliðarverkun af nútíma flugumferð. Veit nefndin hver er tilgangur þess að blása þessum jarðefnum út í andrúmsloftið? Hjálpar það gegn þurrkum, aðstoðar við samskipti eða er þessu beint gegn veðurfarsbreytingum?
4) Í hvaða mæli er “loftkendri myrkvun” beitt í andrúmslofti yfir Evrópu, og hafið í huga að margir hér hafa einnig tekið eftir aukinni tíðni fyrirbærisins og eru áhyggjufullir vegna þess hve lítið er vitað um það og engar opinberar upplýsingar fáanlegar um efnið. Hver hefur frumvkæðið að þessari úðun og hvernig er hún fjármögnuð?
5) Burtséð frá þeim kostum sem ætla má að einhverjir telji við að úða efnum í loftið, er nefndinni kunnugt um einhverja vankanta sem kunna að vera á þessu athæfi, fyrir umhverfið, heilsu almennings, flugumferð eða sjónvarpsmóttökuskilyrði?
6) Hvaða úrræðum er beitt til að koma í veg fyrir að einstaka Evrópuríki eða fyrirtæki grípi einhliða til aðgerða sem hafa áhrif yfir landamæri á önnur ríki, eða hópar borgara kunna að telja óæskileg? Er einhver samvinna þegar í gangi til að vinna úr slíkum málum? Tekur ESB þátt í þessari úðun, eða hefur áætlanir þar um, og hver eru þá markmið nefndarinnar í því sambandi?
European Parliament: question on aircraft condensation trails which no longer only contain water
Forsíðumynd: Efnaslóð yfir Stórhöfða, CC Gullvagninn

Góðar og þarfar spurningar vissulega, sljó yfirvöld hér á Fróni er sljó sem endranær.
Svá góðr
0