Sú kostulega umræða að ESB sé vettvangur sjálfstæðra þjóða verður bráðum óþörf með öllu. Því seðlabanki ESB hefur krafið þjóðir sambandsins um breytingar á nýja Lissbon sáttmálanum. Breytingar sem gera ESB kleyft að refsa þeim þjóðum sem ekki fara eftir settum markmiðum.
Nefnd skipuð Van Rumpuy, forseta sambandsins, og hátt settum fjármálaráðherrum ESB landanna hefur fengið nýjar tillögur frá evrópska seðlabankanum. Í þeim felst að lönd sambandsins verða að sanna fyrir nágrönnum sínum að þau eigi ekki skilið refsingu ef þau fara ekki eftir settum markmiðum. Fara t.d. fram úr fjárlögum eða skulda of mikið.
Ef síðan viðkomandi landi tekst ekki að sannfæra hin löndin um ágæti fjárlaga sinna verður seðlabanka ESB og framkvæmdastjórninni heimilt að draga t.d. úr styrkjum til landbúnaðar eða gefa út vaxtaberandi skuld á viðkomandi.
Hvernig hærri skuldir og lægri styrkir stoppa upp í fjármálagatið í viðkomandi ríkjum er náttúrulega ráðgáta. Því löndunum verður áfram skylt að greiða út styrki til bænda og þeirra sem eiga rétt á þeim samkvæmt ESB reglum.
http://www.euractiv.com/en/euro/ecb-backs-treaty-change-eus-economic-government-news-496016
Þeir sem ekki hlýða verða keyrðir í gjaldþrot og þrotabúið gert upptækt.
Svá góðr
2