Feitir boltakarlar tækla ESB

Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, fer mikinn um þessar mundir í blaðaskrifum sínum til að verja ESB. Í grein sem hann birti í Morgunblaðinu segir hann hin mikla lýðræðishalla innan ESB vera þegnum sambandsins sjálfum að kenna en ekki yfirstjórninni. Fólkið í ESB löndunum eða réttara sagt fulltrúar þess vilji bara alls ekki opið og lýðræðislegt ESB. Þannig ESB eigi eftir að sópa til sín enn meiri völdum og gera heimakæra stjórnmálamenn atvinnulausa.

Í þessari sömu grein reynir síðan Andrés að gera lítið úr völdum framkvæmdarstjórnar ESB. Hún sé í raun voða valdalítil og þingið ásamt ráðherraráðinu ráði því sem skipti máli. Ekki nóg með það heldur sé lagasetningaferli ESB svo langt og flókið að ekki sé neinn séns á að vond löggjöf sleppi þar í gegn. Alls konar hagsmunapotarar, þingmenn, starfsmenn ESB ásamt löglegum lobbýistum sjái til þess.

Í Annarri grein eftir Andrés sem birtist í Fréttablaðinu kvartar hann sáran undan ódrengilegri framkomu andstæðinga ESB. Líkir þeim við feitar fótboltabullur sem ráðast á og tækla sér fimari og fljótari andstæðinga. Það fer ekkert á milli mála að Andrés lítur á íslensku þjóðina sem andstæðing sinn sem þurfi að sigra. Staðan er að vísu ekki góð því meirihlutinn vill ekki inn í ESB. En svoleiðis smámunir flækjast ekki fyrir skapheitum keppnismönnum.

Það er nefnilega alltaf hægt að “beita staðreyndum og rökræðu, forðast gífuryrði og þrætubókarlist og vera upplýsandi.” Eins og Andrés segir. Með fullri vinsemd og virðingu þá gæti málflutningur Andrésar ekki verið lengra frá þessum göfugu markmiðum. Honum er því hollast að halda sig við leðjuslaginn og kalla hann sínu rétta nafni, “leðjuslag”.

http://visir.is/ad-fara-i-manninn!/article/20115696098

http://evropa.blog.is/blog/evropa/entry/1130669/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments