ESB setur spurningarmerki við umhverfismál

ESB setur spurningarmerki við umhverfismál

Samkvæmt frétt sem birtist á fréttaveitunni Euractiv þá verða umhverfismál helst til vandræða í aðlögunarferlinu.  Á blaðamannafundi sagði belgíski utanríkisráðherrann að umhverfismál, Icesave og hvalveiðar væru mál sem þyrfti að skoða sérstaklega.

Ekki vildi ráðherrann útskýra þetta með umhverfismálin frekar en blaðamaður Euractiv getur sér til um að þetta tengist mengandi álverum.  En við hér á Kryppunni teljum að ráðherrann hafi frekar verið að meina að íslensk löggjöf um umhverfismál sé langt á eftir þeirri löggjöf sem gildir í ESB.

Prenta Prenta