Í Silfur Egils mætti einhver franskur gáfumaður og spjallaði um eitt og annað í kapp við frönskukunnáttu þáttarstjórnandans. Þegar kom að ESB vildi Jean C. Victor meina að báknið væri eina heimsveldið sem lönd hafa ekki verði laminn inn í. Þess vegna væri ekki um eiginlegt heimsveldi að ræða. Þessi orð hljóma ótrúlega lík orðum sem Barroso hefur viðhaft við fjölmörg tækifæri. En hann sagði að ESB væri einmitt eina heimsveldið sem þjóðlönd hefðu gengið í af fúsum og frjálsum vilja.
En fyrst ESB er ekki heimsveldi hvað er það þá? Þrátt fyrir allar gáfurnar og frönskuna átti Jean í vandræðum með að útskýra það á mannamáli. “ESB er nokkuð þróað landfræðilegt/pólitískt módel.”, sagði hann. Ekki heimsveldi heldur módel. Ha, ha , ha. Þetta er ekki spilling heldur viðskiptalegir gjörningar.
Ekki má heldur gleyma að smáþjóðir fá skjól hjá ESB og það er svo gott fyrir Ísland. Alveg sérstaklega vegna þess að ESB reynir alls ekki að afmá þjóðarvitund hverrar þjóðar. Allir fá að halda sínum sérkennum. Sagði Jean. Raunar sannar slagorð ESB “Eining í margbreytileikanum” að það vill ekki gleypa smáþjóðir eða þannig:)

Comments
Powered by Facebook Comments