ESB boðar þjóðaratkvæðagreiðslur um góð málefni, not!

Með tilkomu Lissbons sáttmálans gefst þegnum ESB tækifæri til að greiða atkvæði beint um einstök mál.  Gríðarlegar framfarir segja sumir og sannar áhuga framkvæmdastjórnarinnar á beinu lýðræði.  Í frétt sem birtist á Euractiv kemur fram að Belgar, sem nú fara með formensku í ráðherraráðinu, reyni að ná samkomulagi um nánari útfærslu.  Helst deila menn um hvaða mál almenningur geti kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslum um og hvernig framkvæmdinni skuli háttað.

Mögulegt ferli gæti litið þannig út.  Fyrst þarf að safna 100.000 undirskriftum(átti að vera 300.000).  Svo þarf framkvæmdastjórnin eða fulltrúi hennar að ákveða hvort málefnið sé þess verðugt að leyfa þjóðaratkvæðagreiðsluna.  Bull mál eins og t.d. að leggja niður ESB eru bönnuð.  Ef málið fær að halda áfram hefur viðkomandi heilt ár til að safna milljón undirskriftum.

Gefum okkur að málið hljóti blessun ESB og takist að safna umræddum fjölda undirskrifta á réttum tíma.  Þá þarf ESB að hlusta á fulltrúa þeirra sem stóðu að undirskriftasöfnunni.  Ekki endilega að taka mark á niðurstöðuni heldur að taka hana til rækilegrar skoðunnar.

Það er og verður margt skrítið í ESB.  Lengi lifi lýðræðið og hóst, hóst, ást þeirra sem stjórna á völdum og fíflagangi.

http://www.euractiv.com/en/future-eu/belgium-wants-citizens-initiative-deal-december-news-496565

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: , ,