ESB best á Ólympíuleikunum

Ungir sambandssinnar lýstu yfir sigri Evrópusambandsins á vetrarólympíuleikinum í Vancouver en samanlagt unnu lönd ESB til 108 verðlauna.  Glæsilegur árangur og sýnir og sannar hvers vegna betra er að standa saman en húka í sínu horni.  Varaforseti samtakanna, Pála Gessant, segir að með því að leggja áherslu á Evrópusambandið og hvetja þátttakendur til að veifa ESB fánanum sé verið að draga úr hinni slæmu þjóðrembu sem hrjáir marga í tengslum við íþróttaviðburði.  Spurð út í hvort þetta sé ekki bara önnur gerð af þjóðrembu og jafnvel verri ef eitthvað er.  Svaraði Pála því til að svo væri alls ekki heldur sýndi þetta samstöðu og ýtti undir samhug allra Evrópubúa.

Samkvæmt vísindateymi Kryppu.com er hér um nákvæmlegu sömu þjóðrembu að ræða og hrjáir einstök lönd þegar vel gengur í kappleikjum.  Ef eitthvað er þá er ESB þjóðremba verri og hættulegri því hún getur mögulega heltekið fleiri sem er aldrei gott.  Minni þjóðremba en ekki ESB þjóðremba.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments