ESB er að hrapa og hrynja

Útdráttur úr frétt Páls Jósefs Watsonar, Prison Planet, 7. mars 2010.

ESB er að hrynja eins og Babelturninn, en hrægammar IMF og alþjóðabankans bíða þess að væta þurra góma á blóði Grikklands.

Aðahagfræðingur Minnisstæðra fjárfestinga (Monument Securities) Stephen Lewis segir upplausnina í Grikklandi geta leitt til falls Evrópusambandsins.  Þar með afsannast sú hættulega (og vitlausu) hugmynd að risavaxin ríkisbatterí alþjóðlegrar heimsríkisstjórnar sjái fyrir fjárhagslegum stöðugleika á óvissutímum, en hrægammar alþjóðabankans og IMF bíða eins og venjulega eftir að komast í hræin af löndum sem eru að gefast upp.

Grískt verkafólk í verkfalli jafnt sem starfsfólk ríkisins hafa mótmælt með ofbeldisfullum hætti samþykki ríkisstjórnar sinnar á ESB og IMF aðgerðapakkanum, sem fórnar lifistaðli grísks almennings í nánustu framtíð í tilraun til að koma jafnvægi á evrusvæðið í heild.  Það er skaðlegur áfellisdómur á alþjóðlegum stjórnarháttum, sem komið var á undir því yfirskini að þeir stuðluðu að fjárhagslegu jafnvægi en hafa haft alveg þveröfug áhrif, með ókyrrð í Grikklandi sem gæti smitast til Portugals, Spánar og Ítalíu.

“Það er ekki undarlegt að aðgerðapakkinn njóti lítilla vinsælda hjá grískum almenningi,” segir Lewis.  “Það má vera augljóst fyrir grískan almenning að lítið er horft til hagsældar þeirra í framtíðinni, henni er fórnað fyrir dvínandi von um að viðhalda stöðugum gjaldmiðli fyrir borgara annarra evruríkja.”

BNP Paribas greiningardeildin spáir nú að Evran og Bandaríkjadollar verði orðin jafn léleg innan 12 mánaða, en Evran hefur verið sterkari í átta ár.

Hagfræðingurinn Lewis kennir alþjóðasinnunum, sem blekktu evrópskar þjóðir til að afsala sér sjálfræði sínu til Evrópuverkefnisins, alfarið um upplausnina sem nú blasir við.  Stjórnmálamenn þeirra létu blekkjast til að trúa að sú stofnun sem þeir fórnuðu sjálfstæði sinna landa til, myndi verja þau einmitt fyrir þeim hörmungum sem nú herja á þau

EU Is Collapsing Like Tower Of Babel

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: , ,