Ertu til í langtímasamband?

Hækkað verð á sama tíma og kaupið helst það sama hefur neikvæð áhrif á kaupmátt og áhuga fólks á að versla.  Það hefur berlega komið í ljós á síðustu tveim árum þegar gengi gjaldmiðils okkar hefur fallið mikið og hratt og fólk kippir að sér höndunum og kaupir ekki lengur hvað sem er á hvaða verði sem er.

Söluaðilar vöru og þjónustu hafa því orðið að halda í við sig með álagninguna.  Þeir hafa þurft að hagræða frekar í rekstri sínum, bjóða stærri einingar með lægra einingaverði,  eða að öðrum kosti, hætta viðskiptum því viðskiptavinir þverra upp þegar samkeppnin verður virk.

En nú eru þeir að ná upp kjarki að nýju og blása til sóknar með fullu afli spunameistaranna.  Eitt dæmi um slíkt er herferð Toyota umboðsins sem býður 5 ára ábyrgð á nýjum bílum undir slagorðunum “Ertu til í langtímasamband?”

Hvað felst svo í 5 ára ábyrgð?  Dekkjaslit?  Bremsuborðar?  Olíuskipti? Rúðuvökvi?  Nei að sjálfsögðu ekki.  Hvað með ryð og galla í málningu?  Nei.  Púströrið?  Nei.  Hvað með ónýta dempara eftir að fjölskyldan lætur gamminn geysa á malarvegunum í sumarfríinu?  Nei.  En kúplingin sem gefur sig eftir að elsta barnið fær bílpróf og fattar ekki að taka fótinn af kúplingunni?  Nei.  Hvað þá ef innréttingin springur öll í og dettur í sundur?  Nei.  Hvað ef stóllinn gefur sig eftir að eigandinn bætir of miklu á sig um jólin?  Nei.

Er þá eitthvað með 5 ára ábyrgð?  Já – flestir hlutar bílsins eru með 5 ára ábyrgð komi upp bilanir vegna framleiðslugalla.  Það gildir um Toyota bíla, og alla aðra nýja bíla sem seldir eru á Íslandi.

Sjá nánar http://ns.is/ns/frettir/?cat_id=6413&ew_0_a_id=356292

IMG_0490schmidt-dominguez
Creative Commons License mynd: jorgemejia

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments