Erfðabreytt í Nóa kroppi

Nói Síríus er í fararbroddi með að merkja vörur sínar samkvæmt reglugerð um merkingar á erfðabreyttu hráefni sem tók gildi um áramótin.
Reglugerðin kveður á um að merkja skuli erfðabreytt innihaldsefni sérstaklega sé magn þeirra yfir 0.9% af heildarþyngd vöru, risastór glufa sem tryggir að framleiðendur geta selt neytendum órmerkt erfðabreytt hráefni þó í minna mæli sé.
Í merkingu Nóa-Kroppi sem keypt var fyrir páskana má sjá að varan inniheldur kornkúlur sem eru 14% af þyngd, en þar af er erfðabreyttur maís stærsta innihaldsefnið, einhversstaðar á bilinu meira en 0.9% af þyngd en minna en 14%.
Í fréttum upp á síðkastið kemur fram að innflytjendur dýrafóðurs hafa brugðist við reglugerðinni með því að merkja allt maís og soyjafóður innflutt frá Bandaríkjunum sem erfðabreytt, en það er einmitt þumalputtaregla þeirra sem vilja forðast að borða erfðabreytt. Að auki eru oliur úr bómullarfræjum og kanóla olía frá Bandaríkjunum nánast alltaf úr erfðabreyttu hráefni.
Þó þessar fjórar tegundir erfðabreyttra jurta séu útbreyddastar, þá eru þær langt í frá þær einu sem efnavopnaframleiðandinn Monsanto og aðrir álíka vandaðir aðilar hafa sett á markað.
Því ber að fagna að Nói Síríus skuli virða þessa reglugerð og merkja vöru sína samkvæmt henni. Margir hafa engar áhyggjur af niðurstöðum úr rannsóknum óháðra aðila, sem sýna að þriðji ættliður tilraunadýra sem fóðruð eru eingöngu á erfðabreyttu fóðri verður nánast alveg ófrjór og tíðni andvana fæðinga rýkur einnig upp ásamt fæðingargöllum og stökkbreytingum. Þetta fólk mun hiklaust halda áfram að kaupa vel merktar vörur.
Við hin getum nú sneytt hjá þessum vörum.
Lyklar:erfðabreytingar, merkingar á matvælum








