Á Indlandi herjar eiturefnarisinn Monsanto á fátæka og grunlausa bændur. Í þessu myndbroti kemur m.a. fram að fyrirtækið notar flottar auglýsingar, kvikmyndastjörnur og jafnvel guði til að selja ólæsum og fáfróðum bændum bómul sem hentar ekki.
Áður en bændurnir planta Monsanto fræjunum er þeim lofað allt að 100% aukningu og margföldum gróða. Það sem gleymist að segja frá er að Monsanto bómullinn þarf meira og reglulegra vatn en sá gamli. Ekki má heldur gleyma skordýraeitrinu sem bændurnir fá í skylduáskrift með frá Monsanto óumbeðið.
Grínið í þessu öllu er að það voru hjálparsamtök og yfirvöld sem “hjálpuðu” bændunum fyrst að skipta út náttúrulega bómulinum yfir í þennan sem hentar ekki fátækum vatnslitlum bændum.
Góð hjálp!
Comments
Powered by Facebook Comments