Margir Íslendingar klóra sér í kollinum þessa daganna. Skilja ekki upp né niður í því sem er að gerast út um allan heim. Stöndug ríki eru gerð nánast gjaldþrota fyrir opnum tjöldum. Stjórnmálamenn mala um hærri skatta og niðurskurð til að bjarga málunum. Sama vandamál og sama lausn út um allan heim. Ekki má gleyma endalausum drepsóttum, bólusetningum og nærbuxnaleit á flugvöllum. Hvað er í gangi?
Hér koma samsæriskenningar í góðar þarfir og alveg sérstaklega ein. Alþjóðlegir bankamenn með David Rockefeller í broddi fylkingar ætla að sölsa undir sig öll völd í heiminum. Gera ríkisstjórnir einstakra landa óþarfar og drepa svokallað vestrænt lýðræði. Árið 1991 sagði Rockefeller eftirfarandi:
“Við erum þakklátir stjórnendum Washington Post, New York Post, Time og öðrum áhrifamiklum fjölmiðlum fyrir að hafa sótt fundi okkar og haldið þagnareið sinn í bráðum fjörutíu ár.
Það hefði verið gjörsamlega ómögulegt að hrinda plönum okkar fyrir heiminn í framkvæmd ef ljós fjölmiðla hefðu skinið á okkur. En heimurinn í dag er orðin meðfærilegri og er tilbúinn að halda á vit einnar heimsstjórnar með ævarandi friði og hagsæld fyrir mankyn allt.
Alræðisvald heimsstjórnar bankamanna og menntaelítu er klárlega betri kostur en gamaldags sjálfsákvörðunarréttur einstakra þjóða.”
ESB sinnar og áhugamenn um Sameinuðuþjóðirnar og seðlabanka ættu að vara sig á öllu sem frá þessum stofnunum kemur. Fagurt tal er ódýrt og alveg sérstaklega notadrjúgt á sofandi sauði.
Viðtal við David Rockefeller og fleiri. Ótrúlegt en satt?
Comments
Powered by Facebook Comments