Er íslenskt nammi hollara en það útlenska?

Flestir vita að nammi er óhollt en borða það samt. Hver kannast ekki við konuna á undan þér í röðinni með troðfullann nammipoka. Kannski á hún svona mörg börn eða virkilega leiðinlegan kærasta. Nammi, nammi öskra síðan einhverjir óþekktar ormar og fá bland í poka að launum. En það er ekki sama hvaðan gott kemur. Erlenda nammið inniheldur sætuefni sem kallast kornsýróp eða high-fructose corn syrup (HFCS) upp á englasaxneskuna.

Fjölmargar rannsóknir sýna að HFCS sé óhollara fyrir líkamann en annar unninn sykur. Fólk verður feitara og fær frekar sykursýki. Líkaminn brennir nefnilega venjulegum sykri og breytir því sem hann notar ekki í fitu. Ef líkaminn fær kornsýróp breytir hann efninu beint í fitu. Engin brennsla bara fita.

Venjulegur sykur fær líkamann til að framleiða efni sem segja honum að hann sé saddur. Kornsýróp gerir það ekki heldur þvert á móti segir við líkamann að hann sé ekki saddur og verði að borða meira. Viltu meira?

Kornsýróp truflar hjartað og hvítu blóðkornin sem verja líkamann gegn hvers kyns sjúkdómum. Það hefur áhrif á lifrina því ólíkt öðrum sykri sem allur líkaminn getur unnið úr þá er það bara lifrin sem vinnur úr HFCS. Ein tilraun sýndi að dýr sem fengu þetta fínerí í öll mál þróuðu með sér svipuð vandamál og atvinnurónar á Austurvelli.

Íslenskt nammi virðist sem betur fer aðeins innihalda gamla góða sykurinn. Óhollan og hættulegan, auðvitað. En samt þó skömminni skárri en erfðabreytt kornsýróp made in USA. Veljum íslenskt!

Smá einþáttungur með Dr. Bellonzi fyrir þá sem ekki eru ennþá sannfærðir.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments