Smiley face
pigs

Endurmenntun Háskóla Íslands – bólusetningar

Höfundur bjorn þann . Flokkur Bóluefni

Hér er námskeið fyrir alla sem vilja láta bólusetja sig gegn þunglyndi, fýlu og fljúgandi
svínum.

Bólusetningar – ávinningur og áhætta
Í samstarfi við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Almennar bólusetningar bjarga milljónum manna frá dauða og öðrum alvarlegum afleiðingum smitsjúkdóma á hverju ári. Með almennum bólusetningum má útrýma smitsjúkdómum og bæta heilsufar einstaklinga og samfélaga. Jafnhliða bættu heilsufari þá hefur umræða um meintar aukaverkanir bólusetninga farið vaxandi. Slík umræða getur leitt til minnkandi þátttöku í bólusetningum sem veldur aukinni áhættu á að smitsjúkdómar blossi upp með alvarlegum afleiðingum.

Skráningarfrestur er til 18. nóvember 2011.

Saga bólusetninga nær aftur til ársins 1796 er byrjað var að bólusetja gegn bólusótt. Á undanförnum árum hafa komið fram fjölmörg ný bóluefni sem veita vernd gegn ýmsum smitsjúkdómum og ýmsum öðrum sjúkdómum eins og krabbameini.
Á þessu námskeiði verður farið í sögu bólusetninga, hvernig bóluefni vernda gegn sjúkdómum, ávinning og áhættu tengda bólusetningum, og ýmis ný bóluefni sem vænta má að verði markaðssett á næstu árum.

Lyklar:

bjorn

Er launamaður og áhugamaður um mat og fjallgöngur niður brekku.

Skrípó