Endalok internetsins í boði Google

9.8.2010

Í dag kynna Google og Verizon nýjan díl, þar sem vefþjónustum verður boðið að hraða efni sínu til internet notenda gegn greiðslu.

Það hljómar kannski ekki svo illa, en afleiðingarnar eru einfaldlega þær að með tímanum verða til tvenns konar vefsetur á internetinu; Stórstraumsinternetsíður, sem fljóta auðveldlega til allra, og svo draug-hægar jaðarsíður, sem aldrei geta orðið annað en annars flokks og gamaldags.

Nú er högun kerfisins þannig að allt efni fær í grófum dráttum sömu þjónustu þegar það streymir um stærstu æðar internetsins.  Þannig er hægt að lesa Kryppuna með sama hætti frá Kína, eins og mbl.is, þegar pakkarnir fara frá landinu, þá streyma þeir um sömu meginæðar milli heimsálfanna og fá sömu meðferð á leiðinni.

Með nýja kerfinu þurfa þeir sem birta efni að kaupa sér forgang í “mænunni” (internet backbone), sem í fyrstu þýðir að slíkar síður verða ögn hressari fyrir notendur.  En eftir því sem fleiri vel fjármagnaðar stórstraumssíður kaupa forgang, og eigendur mænunnar hægja á vexti hennar, þá verður niðurstaðan sú að stórstraumssíðurnar flæða vel, en jaðarsíðurnar eru plagaðar af löngum sóknartíma, eða verða jafnvel óaðgengilegar á annatímum.

http://www.huffingtonpost.com/josh-silver/google-verizon-deal-the-e_b_671617.html

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments