‘Ekki teisa ömmu!’

Þeir voru tíu fílefldir lögreglumenn í herbergi ömmu, hún var karlæg í rúminu sínu, 86 ára gömul, með súrefni í nös.  Þeim fannst amma gamla ‘ógnandi’, sögðu hana hafa ‘hótað sér með hnífi’ svo þeir ákváðu að beita þrælasvipunni á hana.  Meðan þeir gerðu teiserana sína tilbúna hrópaði barnabarnið: “Ekki teisa ömmu!”

Talsmaður lögreglunnar: Ég skil þessi viðbrögð algerlega og styð þá sem vilja teisa 86 ára gamlar karlægar konur sem ógna 10 lögreglumönnum með hnífi.

Var hægt að sparka hnífnum úr hendi ömmu?  Ef hún var þá með hníf?

Hvað með að slökkva á súrefnisvélinni?  Lungnasjúklingar verða fljótt móðir við venjulega hreyfingu, hvað þá í hnífabardaga. 

Nei – þetta er geggjun.  Teiserinn er ekki ‘vopn’, hann er þrælapískur, sérstaklega ætlaður til að niðurlægja okkur og setja okkur á básinn.

  Segjum nei við lögregluríkinu og tilraunum íslensku lögreglunnar að vopnast teiserum. 

Það er eins og með lánin – þessir teiserar verða aldrei notaðir á alvöru fanta, bankamenn, stjórnmálamenn og annað “betra” fólk.  Þetta er ætlað okkur, ef við viljum mótmæla hruni miðstéttarinnar með hækkandi sköttum, lækkandi launum og hverfandi réttindum á sama tíma og fjárfestingafélög og auðhringir eignast allt.

Þetta ættu lögreglumenn líka að íhuga, þeir eiga skuldir eins og við, þeir eiga börn, hvernig þjóðfélag vilja þeir að sýnis sig hér á landi eftir 5-10 ár?  Lénsveldið, knúið teiserum?

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments