Ekki óhætt að ferðast um Mexíkó

Mexíkó er villta vestrið í dag.  Það eru engir kúrekar eða indjánar, en nóg af spilltum fulltrúum laga og reglu, glæpagengjum og svo ‘Pinkerton’ mönnum, Zetunum.

Það eru ekki tómir fordómar, þegar Bandaríkjamenn vilja að landamæri þeirra séu varin og innflytjendalöggjöf framfylgt.  Mexókó logar í spillingu, ofbeldi og lögleysu.  Þegar innflytjendur flæða inn í Bandaríkin, þá flæðir nokkuð af þessari lögleysu með, þegar glæpagengin fara að líta á bandarísku landamærasvæðin sem útvíkkun á sínu umráðasvæði, þar sem þeir kúga eigin fólk áfram í nýja landinu, og smám saman geta farið að kúga heilu sýslurnar.

Þeim Íslendingum, sem eru sem einna heilagastir þegar umræðan berst að Arizona og mexíkóskum innflytjendum, finnst ekkert skrítið við að þurfa að hlaupa í gegn um endalaus hlið til að komast sjálfir til Bandaríkjanna, þó þeir ætli bara í heimsókn.  Þeir fylla glaðir út endalaus form, svara fáránlegum spurningum í landamæraeftirlitinu, láta taka fingraför sín, labba í gegn um nektarskima og mjólkandi mæður verða stundum að dreypa á eigin framleiðslu svo þær fái að taka þessa fáu millilítra með sér í flug.

En þegar kemur að ólöglegum innflytjendum frá Mexíkó, þá finnst þeim eðlilegt að ekkert eftirlit sé haft með þeim landamærum.  Þeim finnast það kynþóttafordómar ef lögreglan spyr fólk af rómönskum uppruna um græna kortið eða skilríki.  En það sjálft er tilbúið í að sleikja stígvél fulltrúanna hvenær sem þeir líta augum á það.

Hér er frétt CNN af manni sem einn slapp úr 72ja manna fjöldagröf, eftir að Pinkterton menn stjórnvalda höfðu unnið að landamæraeftirliti í Mexíkó. 

Maður sem komst lifandi af úr fjöldaaftöku í Mexíkó, þar sem 72 voru drepnir, ráðleggur öðrum sem langar að gerast bandarískir innflytjendur að vera bara áfram heima og forðast sömu örlög og félagar hans mættu.

Fórnarlömbin í fjöldamorðinu sem átti sér stað í norðurhluta Mexíkó voru innflytjendur frá mið og suður Ameríku sem voru á leið norður.

Í viðtali við ríkissjónvarp Ekvador segir eftirlifandinn, sem heitir Luis Freddy Lala, að hópurinn hafi farið frá Ekvador og farið í gegn um Honduras og Guatemala.  Á þeim hluta leiðarinnar var allt í góðu, segir hann.

Frá Guatemala fóru þeir yfir í Mexíkó og komust með stórum hópi innflytjenda til norðausturhéraða Mexíkó í Tamaulipas ríki.

Þar komu þrír bílar að og umkringdu farartækið sem hann ferðaðist með og hópur þungvopnaðra manna steig út og neyddu hann til að fara í annan bíl.

Farið var með innflytjendurna í hús þar sem þeir voru bundnir saman í fjögurra manna hópum.

Síðar var þeim hent í jörðina með andlitið í moldina.

“Ég heyrði þá skjóta á vini mína,” sagði hann.  “Þeir skutu mig og þeir drápu alla aðra.”

Hann beið nokkrar mínútur og gekk svo alla nóttina þar til hann fékk aðhlynningu á eftirlitsstöð.

“Ég ræð öllum Ekvadorbúum frá því að ferðast þessa leið, því að Zeturnar eru að drepa mikið af fólki,” sagði hann, og vísaði þar til málaliðanna sem taldir eru ábyrgir um morðin.

Stríðsástand í Arizona
Stríðsástand í Arizona
Af hverju ver Obama ekki landamærin við Mexíkó?

Vítisenglar hafa tekið austurland!
Vítisenglar hafa tekið austurland!
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði svertur um allan heim

Innrás í Bandaríkin
Innrás í Bandaríkin
Eigin borgarar meðhöndlaðir sem hryðjuverkafólk en horft framhjá innrás frá Mexikó

http://edition.cnn.com/2010/WORLD/americas/09/02/ecuador.massacre.surviver.speaks/index.html?hpt=C1#fbid=nzCpeY7hbdg&wom=false

Mynd CC amy_b
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments