Ekki fleiri veislur í Pentagonninu, foringinn drepinn aftur

Samkvæmt “háttskrifuðum fulltrúa í bandaríkjastjórn” hefur grýlan Anwar al-Awlaki (the CIA lackey) verið drepinn í loftárás í Yemen, en nákvæmlega þannig dó hann einnig árið 2009.

Þetta eru góðar fréttir, fyrst bin Laden og nú Awlaki, því nú hljótum við að geta farið að vinda ofan af eftirlitsþjóðfélaginu og lögregluríkinu.  Ég býst við að í kjölfarið fylgi fréttir af því að ríkisstjórnin og snatar jafnt úr hægri og vinstri armi skrímslisins sé hætt við forvirku heimildirnar, að það hafi allt saman bara verið orwellskur draumur og meira að gamni gert, frekar en að stjórnvöld væru í alvöru að snúa “saklaus unz sekt er sönnuð” yfir í “sekur, en verið að afla gagna”.

En í alvöru talað, þá eru þessir “foringjar” og “svæðisstjórar” al-Qaeda lítið annað en nöfn sem Pentagonnið og vændismiðlarnir geta notað eftir þörfum þegar þeir útbúa nýjustu áróðursherferðirnar sínar.  Allir helztu foringjar al-Qaeda hafa verið drepnir eða sagðir drepnir í fjölmörg skipti, en RÚV og aðrir gagnlausir fjölmiðlar sjá aldrei neitt skrítið við þessar fréttir, og gullfiskaminnið kemur sér vel þegar svo næsta stóra frétt um hryðjuverk á vegum bin Ladens eða Awlaki dúkkar upp á rúters-fóðrinu.

Öll gögn benda til þess að Awlaki sé á launum hjá bandarískum njósnastofnunum.  Hann tengist nánast öllum hryðjuverkaplottum síðustu ára og við vitum að stjórnvöld eru yfirleitt ábyrg fyrir hryðjuverkum, allt frá því að leikstýra nærbuxnabombernum, sem var hleypt í flugið eftir að bandaríska utanríkisráðuneytið sendi vel klæddan herramann til að liðka til fyrir honum, því hann hafði ekkert vegabréf og var á hinum alræmda lista yfir hryðjuverkamenn, sem fyrir venjulegt fólk þýðir þveröfugt, sérstaklega útlendingar, get ekki ímyndað mér hvernig slíkt fólk ætti að geta ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfs og áritunar, og svo var Awlaki einnig ráðgjafi Fort Hood skotmannsins Nidal Malik majórs.

http://www.prisonplanet.com/no-more-pentagon-dinners-al-qaeda-leader-killed-again.html

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments