Einn af fjórum vill flöguna

Um það bil einn af hverjum fjórum Þjóðverja myndu glaðir láta setja örflögu inn undir skinn sitt ef þeir trúa að því fylgi ávinningur.  23% af eitt þúsund þátttakendum sögðust myndu taka slíka örflögu.  Þar af voru 16% tilbúin að taka hana undir því yfirskini að bráðaliðar ættu auðveldara með að bjarga þeim úr eldsvoða eða rústum.  5% í viðbót voru tilbúin í flöguna ef hún auðveldaði verslun.

Hvernig gæti flaga aðstoðað bráðaliða?  Jú, fyrsta áróðurslínan var sú að þú kemur meðvitundarlaus undir hendur bráðaliða og þeir skanna flöguna til að bera kennsl á þig og fá aðgang að sjúkraskrám þínum og sjá að þú hefur ofnæmi fyrir einu eða öðru o.s.frv.  Nú hafa þeir tekið þetta upp á næsta stig, án þess að orða það beint í fréttinni, því hvernig getur flagan hjálpað bráðaliðum að finna þig í eldsvoða?  Eiga þeir að hlaupa um með skanna og skanna þig áður en þeir bjarga?  Nei, augljóslega ekki.  Þarna er verið að vísa til þess sem andófsmönnum flögunnar hefur verið ljóst frá upphafi.  Flagan er skannanleg úr fjarska, hún setur þig á eftirlitsradarinn, hvar sem þú ert, í óbyggðum eða í miðri borg.  Hún er sennilega skannanleg úr gerfihnöttum, jafnt sem færanlegum skönnum sem geta skannað heilu byggingarnar utan af götu.

72% sögðu þó að þeir myndu ekki “undir neinum kringumstæðum” (yfirskini) leyfa gröftun raftækni inn fyrir hold sitt.  Þessi andstaða virðist koma hátæknigeiranum á óvart, segir í fréttinni.

Þá eigum við væntanlega von á frekari holskeflu áróðurs fyrir flögunni frá fyrirtækjum eins og AIM-Global, sjá Allir svo með RFID

One in four Germans wants microchip under skin: poll 

CC mynd: Joelmills

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments