
Þessi sóðabrók úðar álögnum, baríum og óskilgreindum efnum út í heiðhvolfið og yfir okkur. Hver er tilgangurinn? Vitum við hvaða heilsufarsleg áhrif þetta hefur? Er okkur sama þó heiðum, fallegum bláum himni sé breytt í undanrennulita móðu sem sólin rétt nær í gegnum?
Afsakið fyrirsögnina – ég vildi að sem flestir skoði þetta, en því miður erum við dáleidd af fánýtu kuski svo sem smástirnum, klámi og íþróttum. Fyrirsagnir eins og “úðuð eins og kakkalakkar” eða “veðurhernaður” grípa bara ekki athygli fólks. Það heldur að RÚV myndi láta vita undireins og einhver hætta steðjar að okkur. Sem er gríðarlega sorglegt, því eftir að “íslenska efnahagsundrið” var afhjúpað, þá ætti fólk að hafa slökkt á þessum stöðvum og leitað annað eftir fréttum. Slúður á vinnustöðum eða rakarastofum er miklu betri uppspretta frétta heldur en þessar sorpveitur, mannaðar hórpennum valdsins og auðhringja.
Þetta myndband barst mér frá Brasscheck TV, póstlista sem sendir eitt athyglisvert myndband á hverjum degi. Hér er kynning Brasscheck á myndbandinu:
Efnaslóðir eru ekki til, eða hvað?
Fólk sem talar um þær eru trúðar, er það ekki?
Það eru engir aðilar með flota flugvéla á lofti, dag og nótt að úða þúsundir fermílna flugsvæði um allan heim.
Ef svo væri, þá myndu ríkisstjórnir og fjölmiðlar láta okkur vita og útskýra málið, er það ekki?
Eh… kannski ekki. Skoðið þetta:
http://www.brasschecktv.com/page/899.html

ég hef tekið eftir thessu nokkrum sinnum, einu sinni yfir suðurlandi og tvisvar yfir Reykjavik. Í fyrra skiptið var það mjög lágt en það var lágskýjað þann dag. En svo lyftust skýin frekar skyndilega og þvílíkur megastrókur kom í ljós beint yfir borginni austur/vestur. Hefði átt að vera með myndavél.
Svá góðr
1
athyglisvert! eg var staddur a seydisfirdi um dagin.. Sa 3 thotur um hanott spua svipudum chemmara… thad var heidskyrt tha nott! Eftir svefn i 4 tima tha vaknadi eg alskyjudu umhverfi! merkilegt ad svona fair taka eftir thvi sem gerist fyrir framan nefid a folki alla daga
Svá góðr
2