Fjölmiðlar eru byrjaðir að undirbúa stríðið við Íran. Fréttir af öllu sem getur varpað slæmu ljósi á landið eru dregnar fram í dagsljósið. Kona grýtt fyrir hórbrot, æðsti æjatollann amast við tónlist og margt fleira sem fær sjóndapra Vesturlandabúa til að hugsa illa um Íran.
Egill Helgason lætur ekki sitt eftir liggja og virðist hlakka í kallinum þegar hann smjattar á úldinni frétt frá bresku stríðsmaskínunni. Frétt sem reynir að sýna fram á hversu vond og biluð stjórnvöld í Íran eru. Milli línanna heyrist hvíslað, stríð.. þetta eru böðlar sem eiga allt vont skilið, ekki vorkenna þessum glæpamönnum, innrás í Íran er greiði við aumingja almenning, stríð!
Á sama tíma og Egill ásamt heimspressunni níða skóinn af leiðtogum Írans halda valdamestu menn Bandaríkjanna sína “ugluhátíð” í Bohemian Grove. Þar drekka þeir sig fulla, ærslast úti í skógi og færa gervimannfórn í líki ungabarns á altari fyrir framan 12 metra hátt uglulíkneski. Hljómar trúlega eða hitt og heldur en er samt alveg dagsatt.
Fyrir tíu árum fór grallaraspóinn Alex Jones inn á svæðið og myndaði þessa djöfullegu athöfn. En Egill Helgason hefur ekki áhuga á neinu vafasömu um bandaríska leiðtoga því það gæti dregið úr áhuga almennings á stríðinu við Íran. Íran skal það vera heillin og allt vonda fólkið sem stjórnar þar. Þó 2.500 valdamestu menn Bandaríkjanna tilbiðji heiðið uglulíkneski og færa barnafórnir úti í skógi, ratar það ekki í fréttirnar. Nei, ekki nógu krassandi!


Sammála Halldóri, þetta er fáránlegt skot útí bláin.
Svá góðr
0
þetta er skot út í bláinn, Egill Helgason hefur nú nýlega skrifað mjög gagnrýnið um framferði Ísraelsmanna í Palestínu, um innrásina í Afganistan og um af hverju við séum eiginlega í NATO. geri aðrir fjölmiðlamenn af hans kaliberi betur. ég er vissulega sammála ykkur um þennan áróðurkennda fréttaflutning frá Íran – hann er engin tilvijun, bara venjuleg ,demonification´, hertækni áróðursmaskínunnar. en það er tóm steypa að Egill Helgason sé einhver hluti af henni; Íran er ekkert heilagra en Ísrael.
beinið frekar spjótum ykkar að Óla Tynes, og copy-paste-skrifum hans beint upp úr innanhússriti æðstustrumpa BNA, Foreign Affairs.
Svá góðr
0
Egill vill örugglega ekki stríð en lætur erlendan áróður rugla sig.
Svá góðr
1
Ég er sammála að Egill lætur vera að flygja vondar fréttir frá Saudi Arabíu og USA. Lögregluofbeldi, spilling og kvennhatur flokkast ekki undir alvöru fréttir hjá Agli ef orðið Íran kemur ekki fram í fréttinni.
Svá góðr
2
Er einhver að fara í stríð við Íran?
Svá góðr
1