
Áður fyrr var vandamál að vera öfugur. Karlar og kerlingar með öðruvísi þarfir en fjöldinn þurftu að stunda sín áhugamál inn í skápum og skúmaskotum. En ekki lengur. Lengi lifi frjálsar ástir milli karla með körlum og allar trukkulessur heims geta gift sig á Íslandi, sjáið bara forsætisráðherrann.
En einn er sá hópur sem ekki en fær viðurkenningu á sínum áhugamálum frá ríki og fjölmiðlum. Hópurinn fer stækkandi en fær lítt að hafa sig í frammi og þarf að hýrast inni í skápum og skúmaskotum Veraldarvefsins. Það þykir óþægilegt að heyra í eða sjá þennan hóp. Hann má vera þarna en alls ekki koma fram opinberlega nema þá til að gera grín að honum.
Ég er að tala um fólk eins og mig, samsærisfólkið eða þá sem sjá samsæri þegar aðrir sjá bara tilviljanir eða óheppni. Þegar þota hrapar full af embættismönnum og forsetum segi ég ekki “tilviljun” heldur samsæri. Þegar látið fólk fremur hryðjuverk segi ég ekki tæknileg mistök heldur samsæri. Þegar IMF tekur land á Íslandi segi ég ekki “takk fyrir” heldur samsæri.
Það getur verið erfitt að tilheyra þessum hópi. Í fjölskylduboðum er best að hafa hægt um sig og tala um verðið eða veðrið. Fylgja straumnum og mála ekki skrattann á veggina. Ertu hommi? Var ekki erfitt að koma út úr skápnum. Tóku allir þessu bara vel. En gaman. Gott hjá þér. Ha, erlent samsæri sem teygir anga sína inn í ríkisstjórn Íslands. Ertu frá þér. Þetta var flugslys ekki samsæri. Hvers vegna ætti einhver að gera svona? Er IMF vont fyrir Ísland? Þú ert bara rugludallur og útlendingahatari!
Nú þegar hommar og lessur eru ekki lengur hinsegin heldur bara eins og allir aðrir. Hefur samsærisfólkið tekið við keflinu og er hinsegin og öðruvísi. Er útskúfað og gert grín að.
Til hamingju!
Rökin kunna að vera góð en þegar samsærendurnir neita fullum hálsi eru fáir tilbúnir til að trúa. Meðan valtað er yfir fólk heyrist “Við komum í friði. Við viljum hjálpa þér. Það er ekkert að óttast.”
Svá góðr
2
Ég held ekki að þetta snúist um að hafna öllu fyrirfram sem lýtur að samsærum. Eins og í allri annarri umræðu snýst þetta um að bakka fullyrðingar sínar upp með góðum rökum. Ef rökin eru skotheld er ég tilbúinn að leggja trúnað á hlutinn. Ef ekki, eða ef mótrökin eru sterkari, þá ber okkur báðum að hallast að því sem haldbærast er.
Ég held að gallinn við marga þá sem halda á lofti samsæriskenningum sé sá að það er alveg sama hve góð mótrök koma, þeir ríghalda áfram í hina föllnu fullyrðingu.
Svá góðr
0
Svo eru þeir til, sem tilheyra mörgum skápa-flokkum – en láta ekki troða sér inn í neina skápa, amk. ekki lengur!
Til hamingju með daginn, kæri félagi!
Svá góðr
2