Ég bið ykkur afsökunar, not!

Ég undirritaður, Björgólfur baby, bið alla Íslendinga afsökunar á klaufaskap mínum.  Ég fagna útkomu skýrslunnar.  Ég nennti ekki að tjá mig áður en neyðist til þess nú.  Fyrst af öllu vil ég viðurkenna augljós mistök og segja sorry við þjóðina þó ég sé ekki sammála öllu í skýrslunni.  Niðurstaðan er samt alveg skýr.

Peningabólan og hrun fjármálakerfisins í kjölfarið afhjúpuðu veikleika Íslands.  Afneitun annarra á þátt sínum á hruninu eru til skammar en ég gerði ekkert rangt í skilninga laga, bara smá mistök.  Ég hefði átt að stöðva þetta hrun því ég vissi sko betur en er bara einn maður og því fór sem fór.

Við í viðskiptalífinu biðum eftir stjórnmálamönnum og þeir eftir okkur og þess vegna var ekkert gert og líka vegna þess að ég er bara einn maður.  En ég reyndi mitt besta þegar ég réð erlendan sérfræðing í hásæti Straums burðarvirkis eða hvað bankinn hét nú aftur sem ég átti.  Þessi aðgerð kom bara of seint til að gera eitthvað gagn.

Ég skulda mikið og var því bara í vinnu fyrir lánadrottna mína en ekki sjálfan mig.  Vonandi verð ég minn herra einhverntíma.  Ég var einn þeirra sem hafði raunveruleg völd og áhrif á gang mála.  Þetta nýtti ég mér óspart og kom þjóðinni á hausinn.

Ég bið því Íslendinga afsökunar á að hafa staðið mig svona vel í að taka peninga sem ég átti ekki.  SORRY!

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments