
Efnahagskerfi heimsins er haldið á lífi í öndunarvél meðan verið er að koma heimsríkisstjórn á koppinn.
Þó stórstraumsmiðlar dansi og syngi um dásamlegan bata og betri dollara, þá er ólíklegt að fólk vakni einn daginn í því áhyggjulausa og eyðsluglaða samfélagi sem var fyrir árið 2007. Sömu grundvallarvandamál eru til staðar og í sumum tilfellum er ástandið ótryggara en áður.
Atvinnuleysi
Opinberar tölur um atvinnuleysi í byrjun árs voru um 10%. Þessi tala telur ekki það fólk með sem fær ekki lengur atvinnuleysisbætur en hefur ekki fundið ný störf, né þá sem hafa ekki fulla vinnu. Vinnumálastofnun þeirra tilkynnti nýja útreikninga á atvinnuleysisstigi og fólk bjó sig undir að sjá 800.000 manns bætast á skrána. En fyrir einhverja galdra í öðrum þáttum útreiknings , þá féll atvinnuleysisstigið niður í 9.7%.
Þrátt fyrir kraftaverkakenndan bata dollarans eru slæm teikn á lofti, menn tala um nýja heimsseðlabankamynt, bandarísk ríkisskuldabréf seljast illa og Kína selur úr safni sínu og er ekki lengur stærsti lánadrottinn Bandaríkjanna. Þegar sú frétt fór að hafa áhrif á markað fyrir bréfin, þá kom skyndilega í ljós að Kína ‘átti’ fullt af ríkisskuldabréfum í gegn um þriðja aðila og fyrir kraftaverk varð Kína aftur stærsti fjárfestirinn í bandarískum ríkisskuldabréfum.
Heimsstjórn
Hagfræðiráðstefnur og fundir mikilmenna, svo sem G20 og World Economic Forum, hafa klifað á og um fátt annað rætt en myndun heimsríkisstjórnar síðan eftir kreppuna miklu á síðustu öld. Markmið þessara stefnumótandi ráðstefna alþjóðlegra mikilmenna er að rífa niður sjálfstæði þjóða.
Á síðasta ári sáum við hvernig WHO hnyklaði vöðvana á heimsvísu í gerfisvínaflensufaraldri. Á sama hátt og WHO undirbýr sig undir hlutverk sitt sem alþjóðlegt heilbrigðisráðuneyti þá vaxa völd IMF sem alþjóðlegs fjármálaráðuneyti og þeir ýta undir mikilvægi SDR sýndargjaldmiðilsins, sem hugsanlega gæti orðið arftaki dollarans.
Þetta er ágrip af Economy Kept On Life Support While Global Governance Is Organized
mynd: CarbonNYC

Comments
Powered by Facebook Comments