
Davíð Icke var talinn bilaður þegar hann fór að tala um eðlufólkið. Það var hlegið að honum í heimalandinu og hann svertur á allan mögulegan hátt. En nú er fólk opnara fyrir túlkun hans á heiminum. Þegar allt kemur til alls, þá sjá nú allir að heimurinn er sjúkur og valdafólkið kaldrifjað og án samúðar. Eiginlega eins og skriðdýr.
Í skemmtilegu viðtali við Truth Frequency Radio fetar Icke sig aftur að eðlufólkinu og skýrir hugmynd sína með nýlegri kvikmynd Camróns, Avatar.
Hann segist ekki vita hvort höfundar handrits hafi hugsað það þannig, en Avatar sé í raun táknræn saga um okkur sjálf og eðlufólkið. Eðlufólkið sé gríðarlega tæknivætt, en gjörsneytt andlegu eðli. Í Avatar tákna strumparnir mannkynið, upprunalegt, andlega þenkjandi og óblandað. Mennirnir í Avatar sem koma á geimskipum sínum og með alla tæknina eru eðlukynið. Útsendararnir, sem andsitja strumpalíkama og blanda sér í hópinn, eru svo elítan okkar í dag, bankamenn, fjölmiðlastjórnendur, stjórnmálamenn og iðnjöfrar.
Það stemmir við mínar eigin hugmyndir um að þetta fólk sé meira og minna andsetið, eftir endalausar satanískar athafnir, krjúpandi við frímúraraaltari eða siðrofið með öðrum hætti, svo sem popp kúltúr, frjálsum ástum, ást á peningum og svo framvegis.
Icke vill meina að þetta fólk sé samt ekki endilega bara andsetið af eðlufólki, heldur sé það hreinlega blendingar af mönnum og eðlustofninum.
Annar snilldarpunktur sem hann lagði út af í viðtalinu er kvikmynd John Carpenter, They Live, frá 1988. Hann bendir réttilega á hvernig sú mynd sýnir í raun ástandið í dag. Þar er sagt frá byggingaverkamanni í óljósri framtíð, sem gæti eins verið okkar nútími. Í myndinni býr fólk í tjaldbúðum eftir efnahagslegt hrun og skrapar vinnu ef hún fæst. Á sjónvarsskjá í tjaldbúðunum má stundum sjá hvernig andspyrnuhreyfing brýst inn í útsendinguna og varar við “þeim”, baktjaldamökkurum sem stjórna öllu bak við tjöldin.
Síðar í myndinni kemst söguhetjan yfir gleraugu sem gera honum kleyft að sjá á bak við tjöldin. Þar sér hann áróður auglýsingaskilta og skrímslin sem ganga meðal okkar, en líta eins út og við.
http://truthfrequencyradio.com/?p=1431
Mynd CC Stef

- Rauðklæddu stjórnendurnir eftir Neil Hague (CC).

Comments
Powered by Facebook Comments