“Drepum hommana” lög “bjarga börnunum”

Allskyns alræðislög, reglugerðir og svipting frelsis er réttlætt “vegna barnanna”, það er ekkert nýtt.  En stundum þarf ýktustu dæmin til að sjá og skilja samhengið.  Það er enginn grundvallarmunur á því að banna að sýna lítil brjóst (A skálastærð) í bláum myndum “til að vernda börnin” og því að dæma homma til dauða svo þeir “spilli ekki börnunum”.  Í báðum tilfellum er frelsi fórnað fyrir öryggi.  Þar sem frelsi og öryggi merkja sama hlutinn, þá endar það alltaf á sama veg, ef fólk lætur bjóða sér að fórna frelsi fyrir öryggi, þá fær það hvorugs notið.

Úgandastjórn er í átaki “til að bjarga börnunum” og nú skulu þrjótarnir sko læra, því það er dauðadómur við brotum.  Þeir eru samt voðalega sanngjarnir, því fyrsta brot er ‘ókeypis’, ekki dauðadómur.

En við annað brot, þá er það bara stóridómur. 

Þeir sem ekki eru samkynhneigðir eru samt ekki úr allri hættu.  Það er nóg að vita af ástarfundum samkynhneygðra og kæra þá ekki, þá hafa lögin verið brotin.

http://wakingupnow.com/blog/kill-the-straight-friends-of-gays

Lögin eru hér.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: