Mjög athyglisvert viðtal við Yuri Bezmenov, fyrrum KGB mann sem flúði til vesturlanda fyrir um 40 árum síðan.
Hann segir meðal annars:
15% af tíma, peningum og vinnu njósnastofnanna er notað í starfsemi í ætt við James Bond njósnir.
85% er í hæggengum ferlum sem við köllum ýmist hugmyndafræðilega niðurrifsstarfssemi, eða virkar aðgerðir, eða sálfræðihernað. Það þýðir í raun að breyta skynjun raunveruleikans hjá almenningi.
Kommúnisminn og Sovétheimspekin tapaði ekki stríðinu við vesturlönd. Þeir unni og nú erum við að vakna upp í nýju alheimssovéti, alveg eins og það var hugsað frá upphafi.
Alan Watt segir í þætti sínum frá 1. nóvember 2007:
Það sem Gorbachev sagði við politburo var: “fljótlega munið þið heyra að kommúnisminn sé dauður og búinn að vera. Trúið því ekki. Við erum einfaldlega að fara yfir í næsta fasa.” Hvernig vissi hann það? Jafningjar hans á hinni hliðinni, kapitalismanum, sögðu að tími væri kominn til að tvinna kerfin tvö saman. Það er einnig stutt af skrifum eins af topp gáfutánkunum fyrir þessar hnattvæðingarstofnanir, stofnun fyrir heilaþvott má segja. Þær sem raunverulega hanna framtíðina, sérstaklega hvað menningu varðar og hvað almenningur trúir og hugsar um og svo framvegis. Þessi gáfutankur heitir The Club of Rome.
Club of Rome
Alan Watt heldur áfram:
Club of Rome er ein af mörgum stofnunum en meðal þeirra stærstu sem hafa klakið út hugmyndum um hvernig blekkja má almenning til að sameinast í hanttrænu samfélagi. Í bók sem tánkurinn gaf út stæra stofnfélagar tánksins sig af þeim fjölmörgu hugmyndum sem þeir höfðu velt upp og rannsakað vandlega um leiðir til að koma almenningi saman á hlýðinn máta, að hann hlýði yfirvöldum í heimi án stríða. Því þeir hafa fundið það út að á stríðstímum er fólk viljugast til að hlýða og aðlagast breytingum þegar allt snýst um ótta, ótta um eigin tortímingu. Þeir sögðu í þessari bók, við verðum að finna nýjan óvin, og þeir skoðuðu allt mögulegt í leit að þeim óvini. Gætu þeir fengið fólk til að trúa á innrás utan úr geimnum? Það væri sannarlega hægt með nægri innrætingu, vísindaskáldsögum og svo framvegis og þá væri hvað sem er mögulegt. En þeir töldu samt að auðveldast væri að skapa þá hugmynd að mannkynið væri að ganga frá jöðrinni dauðri og að þeir skyldu kalla það ‘hnattræna hlýnun’. Þetta var birt í bók tánksins frá 8. áratug síðustu aldar “The First Global Revolution”. Finnið þessa bók, með heppni er hægt að finna hana notaða á netinu fyrir 1 dollar eða svo, og í henni er þetta allt viðurkennt.
Skoðið nú viðtalið við Bezmenov í þessu ljósi. Að hlutirnir gerast ekki endilega fyrir tilviljun, óheppni og vanhæfni. Að einhverjir aðilar skipuleggi ferlið.
Í lok viðtalsins er hann spurður hvað Bandaríkin geti gert til að stöðva þetta andlega stríð Sovétsins gegn frelsi og hugmyndum sem vernda frelsi einstaklingsins. Hann segir að fólkið þurfi að neyða ríkisstórnina sína, og ekki dugi að skrifa bréf eða bænaskjöl, heldur neyða stjórnina til að hætta að styðja Sovétríkin.
Þar hafið þið það, hann er sem sé að segja það sama og Alan Watt hér að ofan, Gorbachov og jafningjar hans á ‘hinni hliðinni’, kapitalismanum, þeir vinna saman að sömu markmiðum.
Yuri Bezmenov
Uploaded by onmyway02.


Fínn pistill.
Það sem er að gerast í fjármálaheiminum í dag er í rauninni andstæðan við kapítalisma og gott dæmi um hvernig þetta er að koma aftan að okkur. Voldugar klíkur fárra eru að ráðstafa fjármunum annara í stórum stíl og almenningur er látinn bera allan kostnað, nákvæmlega eins og í gamla Sovét! Svo er það Evrópusambandið, sem stefnir í að verða hið mesta skrifræðis og miðstýringarbákn með sundurleitt efnahagskerfi að hruni komið, nákvæmlega eins í gamla Sovét!
SÖGUTÍMI: SAGA TÍMANS
Sagan endurtekur sig.
Eins og spírall,
í smækkandi hringi.
Sagan endurtekur sig.
Fyrr í hverri umferð,
á fætur annari.
Sagan endurtekur sig.
Með vaxandi hraða,
óreiðu og örvænting.
Sagan endurtekur sig.
Hringiðan sogast,
að stormsins auga.
Lognið, tímans endi..
Heit umræða. Hvað finnst þér?
8