Hún er svakaleg krútta, Lola Karimova, dóttir Islam Karimov, einræðisforseta Uzbekistans. Hún vinnur fyrir UNESCO Sameinuðu þjóðanna, auk þess að sinna góðgerðastörfum, svo sem góðgerða-galanu “Uzbekistan 2020″, þar sem ítalska leikonan Monica Bellucci vakti mikla athygli fyrir glæsileik, enda ætti hún að hafa efni á því þegar ríkistjórn Uzbe borgaði henni 300.000 dollara fyrir að mæta. Það atriði sem komst næst þessari glæsileikonu á galanu var hungraður Uzbeskur munaðarleysingi sem heyrðist muldra um að hann hefði ekki fengið almennilega máltíð í heila viku.
Meðan Lola tryllir alla flottustu fola Evrópu í samkvæmislífi fína fólksins berast fréttir af vælandi bóndakerlingu á svipuðum aldri, sem er með læti vegna þess að hún komst að því að hún hafði verið gerð ófrjó af stjórnvöldum þegar hún fæddi sitt fyrsta barn, andvana, fyrir nokkru. Hvort barnið dó eða var drepið skal ósagt látið, en hitt er víst, að foringi Uzbe hefur skipað ríkislæknum sínum að gera að minnsta kosti tvær konur úr fátækari hluta þjóðarinnar ófrjóar í mánuði hverjum, eða sæta að öðrum kosti sektum eða refsingum. Fæðingartíðni í Uzbe hefur lækkað úr 4,4 börnum á konu niður í 2,5 börn síðan forsetinn lagði línurnar.
Eru Lola og hennar fjölskylda undantekning þegar kemur að stjórnarelítu heimsins? Eru þeir betri, Blair, Búsh, Obama, Bildt og aðrir ‘vestrænir’? Ekki held ég það.
Doctors sterilise Uzbek women by stealth
Lola Karimov: The Surprisingly Glamorous Daughter of a Brutal Uzbek Dictator
Comments
Powered by Facebook Comments