Heimasíðan Gagnauga.is fjallar um menn og málefni á sinn sérstaka hátt. Oftast með gagnrýnum augum en þegar kemur að dópi og sérstaklega kannabis er eins og öll gagnrýni gufi upp í reykmekki. Strákarnir á Gagnauga elska nefnilega dóp og telja það með öllu hættulaust. Og ekki bara hættulaust heldur allra meina bót ef eitthvað er að marka skrif þeirra. Dóp læknar, bætir, hressir, kætir og gerir lífið skemmtilegra en jafnvel Séð og heyrt.
Nýjasta dópgrein þeirra skammar MBL.IS fyrir að endursegja viðtal við Kara GioGuardi, fyrrum Idol dómara. En Kara þessi át óvart heilan poka af dópkökum og þurfti að fara á spítala í kjölfarið því henni fannst hún vera að deyja. Ekkert í fyrirsögninni eða greininni sjálfri segir að dópið góða drepi fólk. Aðeins er endursagt hvað DioGuardi sagði í viðtali hjá grínaranum George Lopez um atvikið.
En í staðin fyrir að sjá grínið í þessu atviki með dópkökurnar reiðast Gagnaugamenn rosalega. Þeir taka nefnilega allar dópsögur til sín og misbýður allt tal um skaðsemi og alveg sérstaklega ef einhver étur heilan poka af dópkokum og verður illt í maganum á eftir. Því samkvæmt þeirra hugmyndum á slíkt ekki að geta gerst. Dópkökur eru jólakökur og henta jafnvel í barnaafmæli.
En svona hljómar reiðilestur Gagnaugamanna: “Þetta bull sem þið sjáið þarna og er nú ein mesta lesna “fréttin” á mbl.is er ekki frétt. Það er ekki einu sinni slúður. Skammist ykkar og vinnið vinnuna ykkar í staðinn fyrir að ljúga að fólki til að þjóna hagsmunum valdaklíkunnar. Mikil ósköp hvað þessi miðill er mikill sorp. Blaðið þeirra er meira að segja lélegt sem klósettpappír, og myndi gagnauga.is aldrei láta bjóða rassinum sínum upp á slíkan óþverra.”
Allur þessi reiðilestur vegna smá fréttar um gellu sem át poka af dópkökum óvart og fannst hún vera að deyja. Því miður held ég að þessi skrif sanni að smá dóp er ekki gott í hófi og mikið dóp er stór skaðlegt. Bæði fyrir geðheilsu viðkomandi og gáfur.

Félagi Gullvagn ég er 100% sammála þér..
Eitt sem mér finnst fyndið, að dóp minstrið sér maður alls staða í samfélaginu.. Fólk af öllum stigum verða fangar sinnar heimsku.. Bara af því langaði í nýjan bíl eða flott ferða lag.. Svo endar það að vera þrælar fyrir banka kallana svipað og þeir sem ánétjast eitur lif afeins of mikið.. Og jafnvel fara út í hættulegri efni.. Verða fangar undirheimsins.. Sem á endanum er stjórnað af peninga græðgi bankamananna.. Þetta er ljóta hringa vitleysan.
Kveðja
Thor
P.S. Hvenær á nú að fara að kýkja í heimsókn?
Svá góðr
1
Takk Thor – ég persónulega tel að bannstefnan sé biluð, hún þjónar fáum nema svartamarkaðsdópsölum. En öll vímuefni eru slæm fyrir þá sem verða þrælar þeirra. Skál í bjórnum.
Svá góðr
1
Ég skil óskop vel að Kryppu menn eru ekki allveg að samþykkja Gagnauga þegar það kemur að Kannabis.
Ég sjálfur er einn þeirra sem getur ekki neitt Kannabis, ég fæ alltaf hvítuna eins og þeir kalla það.. Bara verð veikur og vill fara að sofa. En það er fólk þarna úti sem fær sér Kanabis allveg eins og við fáum okkur kaffi. Án jóks, þegar ég bjó í Fraklandi ég var mjög undrandi að hitta fullorðið fólk sem hafði mjög góða vinnu, einn þeirra var flugumferðastjóri. Og þetta fólk fékk sér annarslægið kannabis jónu. Og hvað mér fannst sérkennilegast var að það skipti ekki máli til hvers við kýktum í heimsókn, þá mátti yðulega finna lítin kassa á stærð við spil, staðsett ofan á sjónvarpinu. Svo gestir gætu gengið að Kannabis beint og notið þeirra. Þar sem ég var ekki hæfur fyrir Kannabis, fannst mér þetta mjög athygglisvert, og hversu fólkið var bara klárt og normal. Þessi lífsreynsla fyrir mig var nóg til að sjá að fullt af fólki getur notið kannabis án vandamála. Svo í dag styð ég notkun kannabis, í stað Alkahól. En sjálfur elska ég bjór og ekkert annað, ha ha ha ha..
Svá góðr
0
Skemmtileg saga Heimir, LOL
Svá góðr
0
Ég sá einusinni forvarnarauglýsingu þegar ég var í bandaríkjunum frá einhverjum samtökum sem voru að berjast gegn kannabisnotkun. Ég hugsaði svosem ekki mikið út í þessa auglýsingu akkúrat á þessum tíma þar sem ég hafði lítinn áhuga á umræðuefninu og svipað lítinn áhuga á efninu sjálfu nema hvað mér þótti hún fyndin. Núna mörgum árum seinna og eftir að hafa horft upp á nokkra af mínum samferðamönnum í lífinu nota þetta efni á daglegum basis, þá efast ég ekki eitt augnablik um sannleiksgildi þess boðskapar sem fram kom í þessari auglýsingu.
Þar sátu tveir menn á að giska miðjum aldri í fínum sófa í fínu húsi og voru að reykja kannabis. Annar þeirra talaði um að hann væri nýkominn úr læknisskoðun og þar hefði enn og einusinni sannast að hann væri í líkamlegu toppstandi þrátt fyrir að hafa reykt kannabis frá unglingsaldi. Svo hlógu þeir og gerðu mikið grín að þessum ösnum sem vöruðu við notkun efnisins. Rúsínan í pylsuenda þessarar auglýsingar var þegar rödd aldraðrar konu kallar úr öðru herbergi “John, will you come here right away and clean your damn room!” Annar miðaldra maðurinn lítur á hinn og spyr: “does your mom nag as much as mine?” “not so much anymore” segir hinn, “it’s been a lot better since i moved into the garage”
Svá góðr
4
Erum við að tala um notkun á “dópi” til lækninga eða til að komast í góðan fíling? Auðvitað er ákveðin hræsni að leyfa áfengi, sígarettur o.s.fr. en ekki t.d. kannabis. Samt óþarfi að reiðast og missa sig yfir svona smá frétt.
Við skulum halda staðreyndum til haga.
“þegar kemur að dópi og sérstaklega kannabis” – Ég hef ekki orðið var við að á Gagnauga séu mikið skrifað um eiturlyf. Hinsvegar eru þeir duglegir að fjalla um náttúrulyfið kannabis, og að hveða niður allskyns þjóðsögur um það.
“Dóp læknar, bætir, hressir, kætir og gerir lífið skemmtilegra” – Þessu hefur aldrei verið haldið fram á Gagnauga.is, hinsvegar hefur þar oft verið fjallað um rannsóknir sem sýna fram á lækningamátt náttúrulyfja, þar á meðal kannabis. Margoft hefur verið sýnt fram á gagnsemi þess við jafn ólíkum kvillum sem gláku, mænusiggi, einhverfu, og jafnvel krabbameini, gjarnan með mun minni aukaverkunum en efnafræðilega framleidd lyf sem eru lögleg. Sumt af þessu get ég vitnað af eigin reynslu.
“Ekkert í fyrirsögninni eða greininni sjálfri segir að dópið góða drepi fólk.” – Nei en þar er heldur engin tilraun gerð til að leiðrétta þá falshugmynd Idol dómarans að nokkur hætta hafi verið á dauðsfalli. Það er nefninlega ekki til neitt sem heitir “banvænn skammtur” af kannabis, efnið er einfaldlega ekki eitrað frekar en kál. (Ég hef borðað yfir mig af káli og fengið grænan niðurgang daginn eftir, það var óþægilegt.) Hinsvegar er banvænn skammtur á meirihluta þeirra lyfseðla sem gefnir eru út fyrir löglegum lyfjum, og jafnvel lausasölulyf geta verið stórhættuleg í of stórum skömmtum. Tvær vodkaflöskur sem ríkið selur í lausasölu innihalda líka nóg af vínanda til að valda áfengiseitrun. Þau vímuefni sem valda flestum dauðsföllum á hverju ári eru löglegu lyfin, læknadóp og áfengi, en í sögu mannkyns er hvergi að finna staðfest tilvik um dauðsfall sem rekja má beinlínis til neyslu kannabisefna.
Kryppan hefur ætíð haft að leiðarljósi að skafa ekki utan af hlutunum og rýna gegnum huluna sem sífellt er reynt að draga yfir sannleikann. Í þessari grein hérna er hinsvegar verið að taka í streng með falsáróðri lyfjaiðnaðarins gegn náttúrulyfjum, sem ásamt löggæslu-/fangelsisiðnaðinum er í þeim hópi sem hefur mesta fjárhagslega hagsmuni af að viðhalda endalausu “stríði gegn fíkniefnum”, stríði gegn okkur sjálfum og meðbræðrum okkar. Kryppuna setur ofan fyrir slíka umfjöllun.
Svá góðr
2