Gilda dómar Hæstaréttar ekki fyrir banka?

5. júlí 2010, við Seðlabanka Íslands kl 12 til 13

Íslendingum blöskrar!

Tekin er afstaða fjármálafyrirtækjanna eina ferðina enn, þar sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands leyfa sér að vaða yfir dóm Hæstarréttar með “TILMÆLUM UM LÆGSTU MEÐALVEXTI FRÁ 2007 SEM ERU 14.76%”. (ekki 8,6%).

Hvert eru menn að fara með Ísland? Eiga þessar stofnanir að fá leyfi til að hnekkja dómi Hæstarrétar? Látum við þetta líka yfir okkur ganga?

Takið með ykkur verkfæri sem búa til mikinn hávaða ásamt spjöldum og öllu öðru sem þið hugsanlega hafið meðferðis.

Við kyngjum þessu ekki þegjandi – nú er mælirinn fullur! Bakkafullur bikarinn er ekki nægjanlega stór fyrir allt það óréttlæti sem yfir okkar þjóð hefur gengið! Næjanlega stór bikar fyrirfinnst ekki!

Stöndum saman allir sem einn!

Frá Mótmælendum Íslands, á feisbúk
Gilda dómar bara um sauðsvarta?
Gilda dómar bara um sauðsvarta?
Verkalýðsforingi lætur heyra í sér
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments