
Í Washington velta menn hverjum steini við í leit að aurum sem nota má til að greiða alþjóðlegu bankamafíunni vexti á gríðarlegum lánum þjóðfélagsins, þeirra útgáfu af Icesave.
Ein af hugmyndunum er kunnugleg fyrir okkur Íslendinga. Bandarísk stofnun leggur til að hætt verði að prenta dollaraseðla og þess í stað slegin mynt. Myntin endist miklu betur en dollarinn og þannig geta stjórnvöld sparað samkvæmt Excel útreikningum, heila 5,5 milljarða dollara á næstu 30 árum.
En myntir endast alltaf betur en seðlar, það er ekkert nýtt.
Það sem er nýtt er það dollarinn er orðinn svo verðlaus og því þarf að prenta svo mikið af þeim seðlum, að myntvæðing seðilsins er orðin áríðandi.
En er verðbólga í Bandaríkjunum? Eitthvað til að tala um?
Nei, ekki samkvæmt opinberu tölunum. Eitt til þrjú og hálft prósent á ári, verðhjöðnun í fyrra. Bandarískar áróðurs og fjármálastofnanir eru snillingar í mati á verðbólgu, enda er verðbólga bara ljót í þeirra augum, lausar við ljóma verðtryggingar og himnaríki lánadrottna, þá hafa þær fundið upp ævintýralegar leiðir til að “leiðrétta” verðbólgu. Til dæmis má lækka verðbólgumatið vegna tölvubúnaðar. Tölva hefur kannski bara hækkað um 20%, en reiknigetan um 200%. Þá er ekki um hækkun að ræða, heldur lækkun. Brauðristar eru nú hræódýrar en kostuðu kannski vikulaun árið 1950. Þannig eru excel seiðkarlar duglegir við að leiðrétta verðbólgutölur með reiknuðum forsemdum sem falla vel að pólitískum markmiðum.
En hvað með að skoða gengi dollarans gegn öðrum myntum? Stendur hann sig ekki ágætlega? Hann styrktist jú gegn Evru og allt?
Jú, alveg rétt, og hann styrktist gegn krónu. Ekki vegna þess að dollarinn væri svo góður, heldur vegna þess að krónan er fórnarlamb samskonar kvislinga við stjórnvölinn, allir í kapphlaupi við að slógdraga þjóðir sínar og efnahagslíf. Það sama á við um pundið og evruna. Varðandi mynt Kína og margra annarra landa, þá er gengi þeirra gjaldmiðla pólitískt ákvarðað og styllt af miðað við gengi dollarans.
En það er ein einföld leið til að giska á raunverulegan verðbólguhraða. Það er að skoða gengi dollarans gegn gullúnsu. Það graf má skoða hér að neðan. Þess ber samt að geta að sennilega er gullverði haldið niðri eins og hægt er um þessar mundir af fjármálasérfræðingum og greiningadeildum. Það geta þeir meðan fólk kaupir gull á pappír, en krefst ekki afhendingar á málminum. Meðan það ástand varir, er gullið að hluta ‘fiat’ eða sýndarverðmæti, alveg eins og seðlarnir.
Þarna má sjá raunverulegu ástæðuna fyrir þörf á að hætta prentun dollara og setja hann í mynt. Hann er nefnilega fyrir löngu orðinn að skiptimynt. Kryppan tekur undir með þeim spámönnum sem segja daga dollarans talda, að hann verði orðin verðlaus í enda 2012. Þá tekur við nýr dollar, eins og á Íslandi tók við ný króna. Tvö núll af og tenging við SDR.


Comments
Powered by Facebook Comments