Djúpur og blár himin á ný

Í skugga öskufallsins  fá Evrópubúar óvænta umbun:  Ósnortinn, heiðbláan himin, skarpari en sést hefur í áraraðir.

Þessi óvenjulega sýn gefst vegna flugbannsins.  Það hindrar þunga umferð þota sem þvers og kruss strika himininn með slóðum, sem sífellt virðast latari til að leysast upp og mynda þunn ský sem smám saman þekja allan himininn með hálfgegnsæu mistri, bláminn verður grynnri og sólin skín að vísu í gegn, en ekki eins skært.

Blár og heiður himin er svo mikill léttir fyrir þotuþrúgaða Evrópubúa, að verðlaunaskáld yrkja, vísindamenn gera athugasemdir og almenningur andar léttara undir dýrð himnanna, sem loksins er sjáanleg eftir meira en áratug af veðurfarshernaði sem athugulir kalla efnaslóðir í stað gömlu þotuslóðanna, sem leystust upp á stuttum tíma, ólíkt þessari nýju gerð.

Carol Ann Duffy, verðlaunaskáld, slengdi fram þessari lofgjörð:

Five miles up the hush and shush of ash
Yet the sky is as clean as a white slate
I could write my childhood there

Röndóttur himin í Þórsmörk 2009

Vísindamenn eru jarðbundnari í athugasemdum, Chris Merchant frá háskólanum í Edinborg segir “himininn hefur verið sérlega blár”.  Það er eins og einhver hafi svipt slæðu í burtu og við blasa hreinir litir himinsins.

Flugbannið hefur í raun fært Evrópubúum kynlega ró, minningu frá öðrum, rólegri tímum, einfaldari tímum þar sem loftið var hreinna, minni asi og engir síðdegisfundir í öðrum álfum, og þotugnýr ekki sífellt í eyrum fólksins.

Að auki hefur öskuskýið gefið Evrópubúum tilkomumikil og eldrauð sólarlög, þegar kvöldsólin síast í gegn um öskuagnirnar í loftinu.

Ash cloud’s silver lining: bluer skies

Sól í gegn um efnaþoku, Þórsmörk 2009

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments