Discovery maðurinn stofnanavæddur

 

Lítið hefur farið fyrir skýringum í stórstraumnum á því hvers vegna maður nokkur tók fólk í gíslingu á Discovery sjónvarpsstöðinni.

Fréttaflutningurinn hér heima snérist aðallega um það að segja frá því að hann væri með byssu og sprengiefni og svo var hann skotinn. 

En erlendis hefur ekki verið dregin fjöður yfir það hvers vegna maðurinn greip til þessara örþrifaráða.  Hann var Malthús maður, þjakaður af áhyggjum um að mannhafið væri of fjölmennt.  Hann trúði á veðurfarsbreytingar og hnattræna hlýnun vegna ‘útblásturs’ koltvísýrings, já, hann “frelsaðist” einmitt yfir á þessa ógæfubraut eftir að hafa horft á lygaþvælu Al Gore, “Inconvenient Truth”. 

Í raun er margt af því sem við skrifum um hér á Kryppunni einmitt aðgerðir skoðanabræðra þessa vesæla kjána.  Hann lét áróður “mannvinanna” ná til sín og gerðist svo svartsýnn um allt og alla, að hann lagði lífið í sölurnar, eins og Jesú veðurfarsbreytinganna, til þess að Discovery rásin breytti um stefnu færi að predika um takmörkun fæðinga og ófrjósemisaðgerðir.

Þessir skoðanabræður ógæfumannsins eru samt ekki eins blóðheitir og örgeðja.  Þeir vinna að útrýmingu almennings með köldum huga og köldu blóði.  Mjaka sér inn í háskólana og hafa þar áhrif á næstu kynslóðir vísindamanna.  Vísindamanna sem taka við kyndlinum og gleðjast yfir nýjum hugmyndum um hvernig hægt er að “hafa vit” fyrir fólki, gera það ófrjótt, veikara, líklegra til að deyja fyrr.

Hér er til dæmis sagt frá því hvernig Alþjóðabankinn og IMF hótuðu nauðstöddum þjóðum fjárhagslegum þvingunum, nema þær tækju upp “mannfjöldastjórnun”.

Í skýrslu sem þessar stofnanir stóðu að er meðal annars rætt um færanlega aðstöðu, eins og ófrjósemishúsbíla í Thailandi eða tímabundnar “búðir”, sem hægt er að slá upp, gelda sýsluna og færa sig svo um set.

Þessi skýrsla er í fullu saræmi við stefnu Sameinuðu þjóðanna, Rockefeller góðgerðaveldisins, Ford stofnunarinnar, WHO og IMF, sem öll vinna í að grisja jörðina af fólki í hnattrænu átaki.  Réttlæting þessa er skrýdd í frösum eins og sjálfbær þróun og að draga úr fátækt.

http://www.prisonplanet.com/world-bank-threatens-%e2%80%9cdrastic-steps-necessary%e2%80%9d-if-nations-refuse-population-reduction-implementation.html

Mynd CC hectorhannibal

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments