Dirty kosningabarátta að hætti gamalla sóðakarla

Pútín kann á lýðræðið.  Þú vinnur ekki kosningabaráttu á málefnunum.  Þú vinnur hana á “fegurðinni”.  Fótósjoppuðum ofurmódelum og druslulegum háskólastelpum, sem eru til í að láta gamla (og unga) sóðakarla sjá sperrtar geirvörtur og kannski klappa létt á bossa fyrir málstaðinn, svo allir kjósi nú rétt.

Hér er nýleg sjónvarpsauglýsing frá honum.  Þar sést að kosningar snúast fyrst og fremst um kynlíf.  Og þeir sem kjósa rétt eru sexí.

Kosningar eru 4. desember í Rússlandi og meðal annars frumkvæðis í kosningabaráttu Pútíns má nefna að grasrótarhópur rússneskra ofurskutla sem kalla sig Her Pútíns stóð fyrir átaki sem þær kölluðu “ég ríf af mér pjötlurnar fyrir Pútín”.  Þar höfðuðu þær til ‘ungra og gáfaðra fergurðardísa’ og hvöttu þær til að ‘rífa sig úr leppunum fyrir Pútín’ og setja vídeo af því á youtubb.

Sama mánuð buðu svo háskólagæsir í efnislitlum baðfötum upp á æsispennandi bólaþvott  til styrktar málefninu.

Þrátt fyrir sjóðandi kosningabaráttu og slagorðið “gerum það saman,” þá telur Mail Online að flokkur Pútíns muni ekki sigra.  Við skulum sjá til.  Kannski tekur unga kynslóðin við sér eftir að sjá nýjasta auglýsingamyndbandið, eða Pútín beitir bara gömlu góðu sovéttöktunum við talninguna.

Eins og Stalín sagði: “Það skiptir ekki máli hvað fólkið kýs, heldur hver telur atkvæðin.”

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments