
Dauðaþjarkar Nóbelsfriðarverðlaunahafans létu Vítisflaugunum (TM) rigna yfir grunaða Talibana, en sumar skrikuðu til og lentu í húsi fullu af konum og börnum.
Pakistanskir leyniþjónustumenn segja flesta hina “grunuðu” sem létu lífið vera Afgani, en ekki er vitað hversu mikið af gögnum sem benda til illra verka hafi dugað til að réttlæta árásina. Samkvæmt bandarískum lögum þarf ekki mikið til, nóg er að forsetinn, eða foringi í hans nafni, segi menn óvinavígamenn (enemy combatant) til að þeir séu sekir og megi meðhöndla án dóms og laga, en tæknilega er glæpurinn ”óvinavígamenn” stöðuglæpur.
Dauðaþjarknum tókst að taka líf 20 manns í árásinni, þar af voru að minnsta kosti fjórar konur og þrjú börn.
Hinn mikli dauðatollur af notkun dauðaþjarkanna hefur vakið þónokkra andúð á Bandaríkjamönnum innan Pakistan, en 700 manns létust af völdum dauðaþjarka árið 2009. Hillary Clinton utanríkisráðherra hefur ekki miklar áhyggjur af dauða óbreyttra borgara og segir bara “það er stríð í gangi.”
http://news.antiwar.com/2010/08/23/us-drone-strike-destroys-house-full-of-children-in-pakistan/
Comments
Powered by Facebook Comments