Dauðaþjarkar innan Bandaríkjanna

Lesendur Kryppu þekkja dæmin um notkun dauðaþjarka til að njósna um fólkið í hernumdu löndum heimsveldisins.
Þar er þeim gjarna beitt þegar fólk kemur saman, við giftingar eða jarðarfarir, og ef heimsveldið grunar að einhverjir ‘hryðjuverkamenn’ (sem er afar vítt hugtak, núorðið) séu meðal gestanna, þá sjá þeir um ókeypis flugeldasýningu, skjóta eins og nokkrum Vítisflaugum ™ á gestina, sama þó tugir saklausra og barna deyji, allt í nafni NATÓ og baráttunnar gegn “hryðjuverkum”.
Þessari frétt hér að neðan var sjónvarpað í Bandaríkjunum, henni er greinilega ætlað að venja fólkið við þeirri hugmynd að njósnaflugvélum sé beitt innan landamæra Bandaríkjanna. Eins og er eru þessir þjarkar óvopnaðir, en nákvæmlega sami búnaður er notaður í Afganistan, Írak og víðar, þar sem opið veiðileyfi er á að drepa “hryðjuverkamenn” með fjarstýrðum dauðaþjörkum. Eins og sést í myndbandinu, þá eru þessir þjarkar engin smásmíði og geta borið þung vopn.
Í fréttinni er sýnt hvernig þjarkurinn getur njósnað um fáeina menn úti á víðavangi úr 3ja km hæð og 8 km fjarlægð. Raunar heyrðist mér að tveggja stjörnu herforinginn sem kynnir búnaðinn hafi talað um “100 miles deep” þegar rætt var hversu mikið svæði þjarkarnir gætu dekkað. Þá gátu þeir flogið svo og svo margar mílur í beinni línu og njósnað 100 mílna (160 km) radíus út frá sér.
Þessum þjörkum er nú beitt til að njósna um landamæri Bandaríkjanna og Kanada. Flestir myndu telja að það væru friðsöm landamæri, svona eins og sýslumörk á Íslandi. Landamærin milli Bandaríkjanna og Mexíkó loga hinsvegar í glæpastarfssemi og eiturlyfjagengi halda íbúum í ótta við að fara inn á ákveðin svæði sem þó eru hluti Bandaríkjanna, langt inni í landi. En þess háttar starfssemi flokkast ekki sem “hryðjuverk” og því mikilvægara að tollgæslan noti þessi fokdýru tæki sín til að njósna um landamæri Bandaríkjanna og Kanada.
Tengt:
Héldu að hindber væru terror,
Njósnaþjarkar notaðir á vesturlöndum,
Morð.gov,
Það snýst um HLÝÐNI
Lyklar:dauðaþjarkar, Kanada, landamæri, njósnir, predator








